Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
banner
   fös 20. febrúar 2026 21:45
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Berardi sökkti Verona
Mynd: EPA
Sassuolo 3 - 0 Verona
1-0 Andrea Pinamonti ('40)
1-0 Domenico Berardi, misnotað víti ('44)
2-0 Domenico Berardi ('44)
3-0 Domenico Berardi ('62)
Rautt spjald: Al Musrati, Verona ('85)

Nýliðar Sassuolo tóku á móti botnliði Verona í eina leik dagsins í ítalska boltanum og náði Andrea Pinamonti forystunni undir lok fyrri hálfleiks.

Domenico Berardi fékk svo kjörið tækifæri til að jafna úr vítaspyrnu en klúðraði. Boltinn barst þó aftur til hans svo hann fylgdi eftir með marki og var staðan 2-0 í leikhlé.

Fyrri hálfleikurinn hafði verið nokkuð jafn en heimamenn nýttu færin sín betur. Svipað var uppi á teningnum í síðari hálfleik og innsiglaði Berardi sigur Sassuolo á 62. mínútu.

Al Musrati var alltof seinn í standandi tæklingu og traðkaði ofan á leikmanni Sassuolo svo gestirnir frá Veróna enduðu leikinn manni færri. Lokatölur 3-0.

Sassuolo er að eiga frábæra endurkomu í Serie A og situr í efri hluta deildarinnar með 35 stig eftir 26 umferðir, sjö stigum frá evrópubaráttunni.

Verona er í botnsætinu með 15 stig, heilum níu stigum frá öruggu sæti.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 28 22 1 5 64 22 +42 67
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 28 12 10 6 39 26 +13 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 28 11 5 12 35 38 -3 38
10 Lazio 28 9 10 9 28 28 0 37
11 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner