Arsenal orðað við þrjá - Zirkzee vill fara frá Man Utd sem vill fá Murillo - Kinsky fer á láni
   fös 20. febrúar 2026 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Leicester áfrýjar stigafrádrættinum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Leicester City er búið að áfrýja ákvörðun ensku neðri deildanna (EFL) um sex stiga frádrátt vegna brota á fjármálareglum.

Leicester, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í fyrra, er í fallsæti eftir frádráttinn - með 32 stig eftir 32 umferðir.

Sjálfstæð nefnd ráðlagði EFL að draga sex stig af Leicester vegna brota félagsins og var þeirri ráðleggingu fylgt.

EFL tilkynnti í dag um áfrýjun Leicester og sagðist ætla að gera allt í sínu valdi til að fá niðurstöðu í málið fyrir lok deildartímabilsins.

Meint Brot Leicester eru frá tímabilinu 2023-24, þegar félagið vann Championship deildina til að komast aftur upp í úrvalsdeildina í fyrstu tilraun eftir fall úr deild þeirra bestu tímabilið áður.

Enska úrvalsdeildin er partur af málinu og ætlar einnig að áfrýja. Stjórnendur úrvalsdeildarinnar vilja að Leicester fái sekt fyrir að skila inn ársreikningum sínum alltof seint.

   05.02.2026 20:44
Sex stig dregin af Leicester sem er markatölu frá fallsæti

Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 37 23 8 6 77 38 +39 77
2 Middlesbrough 37 20 9 8 58 36 +22 69
3 Millwall 37 20 8 9 51 41 +10 68
4 Ipswich Town 36 18 11 7 64 38 +26 65
5 Hull City 37 19 6 12 59 53 +6 63
6 Wrexham 36 15 12 9 55 47 +8 57
7 Southampton 36 14 12 10 58 47 +11 54
8 Derby County 37 15 9 13 54 48 +6 54
9 Watford 36 13 13 10 46 42 +4 52
10 Birmingham 37 14 10 13 47 47 0 52
11 Swansea 37 15 7 15 44 44 0 52
12 Bristol City 37 14 8 15 48 48 0 50
13 Sheffield Utd 37 15 4 18 52 51 +1 49
14 Preston NE 37 12 13 12 42 46 -4 49
15 Norwich 36 14 6 16 49 45 +4 48
16 Stoke City 37 13 9 15 42 39 +3 48
17 Charlton Athletic 37 12 11 14 35 44 -9 47
18 QPR 37 13 8 16 46 59 -13 47
19 Portsmouth 36 10 10 16 36 47 -11 40
20 Blackburn 37 10 9 18 34 48 -14 39
21 Leicester 37 11 11 15 50 57 -7 38
22 Oxford United 37 9 11 17 35 48 -13 38
23 West Brom 37 9 10 18 36 54 -18 37
24 Sheff Wed 37 1 9 27 23 74 -51 -6
Athugasemdir
banner
banner