Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   fim 05. febrúar 2026 20:44
Brynjar Ingi Erluson
Sex stig dregin af Leicester sem er markatölu frá fallsæti
Mynd: EPA
EFL-deildin hefur dregið sex stig af enska B-deildarliðinu Leicester City fyrir brot á fjárhagsreglum en þetta kemur fram í yfirlýsingu deildarinnar í dag.

Stigafrádrátturinn er staðfestur og þýðir þetta að Leicester fer úr 17. sæti og niður í 20. sæti og er markatölu fyrir ofan fallsæti.

Þessi niðurstaða kemur eftir að Leicester var kært í maí 2024 fyrir brot á PSR-reglum deildarinnar, sem varða hagnað og sjálfbærni á þremur árum fram að tímabilinu 2023-2024.

Leicester féll úr úrvalsdeildinni síðasta vor og verið í miklum vandræðum á þessari leiktíð. Marti Cifuentes var látinn taka poka sinn í síðasta mánuði eftir slakan árangur og mun Andy King stýra liðinu til bráðabirgða.

Félagið er vonsvikið með úrskurð EFL-deildarinnar og er nú að skoða það að fara með málið lengra.

Upprunalega kæran kom frá ensku úrvalsdeildinni var síðan sett í hendur EFL-deildairnnar eftir að Leicester féll niður um deild. Leicester var ósátt með að horft var yfir 37 mánaða tímabil frekar en 36 mánaða vegna tafa á skilum á ársreikningi fyrir tímabilið 2023-2024.

Niðurstaða nefndarinnar var að líta á þetta sem 36 mánaða tímabil, en Leicester eyddi 20,8 milljónum punda umfram 83 milljóna punda takmörk EFL-deildarinnar.

Deildin gat dregið allt að tólf stig af Leicester, en nefndin ákvað að miða við hlutfallegslega umframeyðslu og komst að þeirri niðurstöðu að taka sex stig af liðinu vegna batnandi fjárhagsstöðu félagsins á matstímabilinu.

Leicester er án sigurs í síðustu fjórum deildarleikjum og raunverulegur möguleiki á því að liðið fari niður um deild annað árið í röð.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 36 22 8 6 74 38 +36 74
2 Middlesbrough 35 19 9 7 54 35 +19 66
3 Millwall 36 19 8 9 50 41 +9 65
4 Ipswich Town 35 18 10 7 61 35 +26 64
5 Hull City 36 18 6 12 57 52 +5 60
6 Wrexham 35 15 12 8 54 45 +9 57
7 Derby County 36 15 9 12 54 47 +7 54
8 Southampton 35 14 11 10 57 46 +11 53
9 Watford 35 13 12 10 45 41 +4 51
10 Bristol City 36 14 8 14 48 46 +2 50
11 Sheffield Utd 36 15 4 17 51 49 +2 49
12 Birmingham 36 13 10 13 46 47 -1 49
13 Preston NE 36 12 13 11 42 43 -1 49
14 Swansea 36 14 7 15 42 43 -1 49
15 Stoke City 36 13 8 15 39 36 +3 47
16 QPR 35 13 8 14 46 54 -8 47
17 Norwich 35 13 6 16 47 44 +3 45
18 Charlton Athletic 36 11 11 14 34 44 -10 44
19 Portsmouth 35 10 10 15 35 45 -10 40
20 Blackburn 36 10 9 17 34 47 -13 39
21 West Brom 36 9 9 18 35 53 -18 36
22 Leicester 36 10 11 15 48 57 -9 35
23 Oxford United 36 8 11 17 34 48 -14 35
24 Sheff Wed 36 1 8 27 22 73 -51 -7
Athugasemdir
banner