Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 10:18
Brynjar Ingi Erluson
Búa sig undir að missa Mateus Mane - Delap efstur á óskalista Everton
Powerade
Hvert fer Mateus Mane?
Hvert fer Mateus Mane?
Mynd: EPA
Liam Delap er á óskalista Everton
Liam Delap er á óskalista Everton
Mynd: EPA
Mateus Mane mun líklega færa sig um set í sumar, Everton vill Liam Delap frá Everton og Robbie Keane gæti tekið við keflinu af Oliver Glasner hjá Crystal Palace. Þetta er allt saman í Powerade-slúðurpakka dagsins og meira til.

Wolves býst við að missa Mateus Mane (18) í sumar en Arsenal, Liverpool og Manchester United eru mjög hrifin af þessum unglingalandsliðsmanni Englands. (CaughtOffside)

Everton hefur sett Liam Delap (23), framherja Chelsea, efstan á óskalistann fyrir sumarið. Delap kom til Chelsea frá Ipswich Town á síðasta ári. (Football Insider)

Robbie Keane, sem stýrir Ferencvaros í Ungverjalandi, er í myndinni hjá Crystal Palace, en hann gæti tekið við stjórastöðunni af Oliver Glasner sem situr í heitu sæti. (Talksport)

Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro (33) yfirgefur Man Utd eftir þetta tímabil, en Inter Miami, Porto og Sao Paulo eru öll áhugasöm. (Sun)

Kaupskylda Aston Villa á Harvey Elliott (22) mun aðeins virkjast ef hann spilar ákveðið marga úrvalsdeildarleiki. Villa fékk hann á láni frá Liverpool síðasta sumar og er kaupskylduverðið 35 milljónir punda. Hann hefur aðeins spilað fjóra deildarleiki til þessa. (Sky Sports)

Framtíð Morgan Rogers (23) hjá Aston Villa veltur ekki endilega á því hvort félagið komist í Meistaradeild Evrópu. (Football Insider)

Lennart Karl mun skrifa undir nýjan samning hjá Bayern München er hann fagnar 18 ára afmæli sínu á morgun. Arsenal, Liverpool, Manchester, Paris Saint-Germain og Real Madrid hafa sýnt honum áhuga. (Teamtalk)

Xavier Vilajoana, sem sækist eftir embætti forseta Barcelona, hefur sett sig í samband við Bayern München og Harry Kane (32) varðandi það að fá hann til félagsins, takist honum að vinna forsetakosningarnar í næsta mánuði. (ESPN)

Argentínski sóknarmaðurinn Tadeo Allende (27), ætlar að vera áfram hjá Inter Miami, en hann er sagður afar ánægður með að spila með þeim Lionel Messi, Luis Suarez og Rodrigo De Paul. (Goal)
Athugasemdir
banner
banner