Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 19:21
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið City og Newcastle: Foden bekkjaður
Þrjár breytingar hjá Newcastle
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Manchester City og Newcastle United eigast við í spennandi lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni þar sem heimamenn geta minnkað bilið í titilbaráttunni niður í tvö stig með sigri.

Pep Guardiola þjálfari Man City gerir aðeins eina breytingu á byrjunarliðinu sem lagði Fulham að velli í síðustu umferð, þar sem Omar Marmoush kemur inn í byrjunarliðið fyrir Phil Foden.

Eddie Howe gerir þrjár breytingar á liði Newcastle sem sigraði á útivelli gegn Tottenham í síðustu umferð.

Sven Botman og Bruno Guimaraes eru ekki með vegna meiðsla og sest Harvey Barnes á bekkinn. Anthony Gordon, sem skoraði fernu í miðri viku, byrjar í fremstu víglínu.

Lewis Hall, Sandro Tonali og Nick Woltemade koma inn í byrjunarliðið.

Man City: Donnarumma, Nunes, Dias, Guehi, Ait-Nouri, Rodri, Bernardo, O’Reilly, Semenyo, Marmoush, Haaland.
Varamenn: Trafford, Reijnders, Stones, Cherki, Nico, Savinho, Khusanov, Foden, Lewis

Newcastle: Pope, Trippier, Thiaw, Burn, Hall, Tonali, Ramsey, Woltemade, Willock, Elanga, Gordon.
Varamenn: Ruddy, Ramsdale, Joelinton, Barnes, Osula, J.Murphy, A.Murphy, Shahar, Neave
Athugasemdir
banner
banner
banner