Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 21. febrúar 2026 23:23
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu draumamark Stach gegn Aston Villa
Leeds borgaði um 15 til 20 milljónir punda til að kaupa Stach úr röðum Wolfsburg síðasta sumar og hefur hann reynst algjör lykilmaður fyrir félagið.
Leeds borgaði um 15 til 20 milljónir punda til að kaupa Stach úr röðum Wolfsburg síðasta sumar og hefur hann reynst algjör lykilmaður fyrir félagið.
Mynd: Leeds United
Aston Villa fékk kjörið tækifæri til að saxa bilið á milli sín og toppliðs Arsenal í titilbaráttunni þegar nýliðar Leeds United kíktu í heimsókn á Villa Park í dag.

Villa lenti þó í miklu basli með Leeds og úr varð jafn og skemmtilegur leikur sem bauð upp á færi á báða bóga, en Anton Stach skoraði fyrsta mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks.

Stach skoraði algjört draumamark beint úr aukaspyrnu af um 30 metra færi til að taka forystuna fyrir Leeds. Hann tók eftir því að Emiliano Martínez markvörður Villa bjóst við fyrirgjöf svo Stach ákvað að láta vaða eins og er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Skottilraun Stach var fullkominn og tókst honum að skrúfa boltann undir samskeytin þar sem Martínez, sem var illa staðsettur og lengi að taka fyrsta hliðarskrefið, náði ekki til hans.

   21.02.2026 17:08
England: Fagnaði leikjametinu með sigri - Chelsea fékk á sig jöfnunarmark í uppbótartíma



Alternate angles of Stach's free kick goal against Aston Villa
by
u/sepi0l_45 in
soccer

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
14 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner