Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 10:46
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu Mata skora tvö glæsimörk í grannaslag í Ástralíu
Juan Mata hefur komið a'
Juan Mata hefur komið a'
Mynd: EPA
Juan Manuel Mata, fyrrum leikmaður Chelsea og Manchester United, er að gera frábæra hluti í Ástralíu en hann átti stórleik í 3-1 sigri Melbourne Victory á nágrönnunum í Melbourne City í úrvalsdeildinni þar í landi.

Mata kom í áströlsku deildina fyrir einu og hálfu ári síðan er hann samdi við Western Sydney þar sem hann lék í eitt ár áður en hann gekk í raðir Victory.

Spánverjinn er eitt stærsta nafn sem spilað hefur í deildinni og farið mikinn.

Fyrir grannaslaginn gegn Melbourne City í dag hafði hann skorað eitt mark og gefið átta stoðsendingar í áströlsku úrvalsdeildinni, en hann tvö mörk í dag.

Fyrra markið var sérstaklega glæsilegt en þá vann liðsfélagi hans boltann 40 metrum frá marki og þaðan fór boltinn til Mata sem lyfti honum hnitmiðað yfir markvörðinn.

Annað markið gerði hann með frábæru skoti rétt fyrir utan teig sem kom liðinu í 2-1 áður en hann átti stoðsendingu að markinu sem tryggði sigurinn. Stjörnuframmistaða hjá Mata.

Melbourne er í fimmta sæti deildarinnar með 27 stig, sex stigum frá toppnum.




Athugasemdir
banner
banner
banner