PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
   lau 21. febrúar 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vill ekki missa Rodri á frjálsri sölu næsta sumar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Pep Guardiola þjálfari Manchester City vonast til að halda miðjumanninum Rodri hjá félaginu en samningur hans rennur út næsta sumar.

Rodri er 29 ára gamall og var útnefndur sem besti fótboltamaður heims á Balon d'Or verðlaunahátíðinni í október 2024, eftir að hafa verið algjör lykilmaður er Man City og spænska landsliðið náðu mögnuðum árangri.

Hann sleit krossband haustið 2024 og sneri aftur á völlinn síðasta sumar, tæpu ári eftir slitin. Hann lenti í smávægilegum meiðslum undir lok undirbúningstímabilsins og byrjaði deildartímabilið með City. Hann meiddist aftur smávægilega á byrjun tímabils áður en hann varð fyrir meiðslum aftan í læri sem héldu honum frá keppni í tæpa þrjá mánuði. Hann byrjaði að spila aftur með aðalliðinu á nýársdag og er að komast í betra form með hverjum leiknum.

„Hann sneri til baka alltof snemma eftir krossbandsslitin," sagði Pep Guardiola á fréttamannafundi í gær, fyrir leik City gegn Newcastle sem fer fram í dag. „Við vildum fá hann aftur til baka og hann vildi sjálfur snúa til baka sem fyrst og þess vegna varð hann fyrir nýjum og nýjum meiðslum. Við lærum af þessu.

„Manneskjur þurfa ákveðinn tíma til að jafna sig. Sumir leikmenn eru sneggri að jafna sig, eins og til dæmis Bernardo (Silva) eða Phil (Foden), en aðrir þurfa lengri tíma.

„Rodri er ekki enn upp á sitt besta en hann er að bæta sig með hverjum deginum. Hann er sífellt að æfa betur, spila betur og í betra skapi. Hann er sérstakur leikmaður og ég vona innilega að hann fari ekki í sumar. Ég vil gera allt til þess að halda honum hérna,

„Rodri er Rodri sama hvað. Hann er rosalega klár leikmaður sem á bara eftir að verða betri með aldrinum. Hann er risastór persónuleiki sem hefur átt algjöran lykilþátt í árangri okkar í fortíðinni."


Pep ræddi einnig um meiðslalista Man City og staðfesti að kantmaðurinn Savinho er kominn aftur eftir tæplega tveggja mánaða fjarveru. Jérémy Doku er ennþá fjarri góðu gamni en Erling Braut Haaland er búinn að jafna sig eftir smávægileg hnémeiðsli.

City er í harðri titilbaráttu við topplið Arsenal og getur minnkað bilið niður í tvö stig með sigri gegn Newcastle í dag.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 27 17 7 3 52 20 +32 58
2 Man City 26 16 5 5 54 24 +30 53
3 Aston Villa 26 15 5 6 37 27 +10 50
4 Man Utd 26 12 9 5 47 37 +10 45
5 Chelsea 26 12 8 6 47 30 +17 44
6 Liverpool 26 12 6 8 41 35 +6 42
7 Brentford 26 12 4 10 40 35 +5 40
8 Everton 26 10 7 9 29 30 -1 37
9 Bournemouth 26 9 10 7 43 45 -2 37
10 Newcastle 26 10 6 10 37 37 0 36
11 Sunderland 26 9 9 8 27 30 -3 36
12 Fulham 26 10 4 12 35 40 -5 34
13 Crystal Palace 26 8 8 10 28 32 -4 32
14 Brighton 26 7 10 9 34 34 0 31
15 Leeds 26 7 9 10 36 45 -9 30
16 Tottenham 26 7 8 11 36 37 -1 29
17 Nott. Forest 26 7 6 13 25 38 -13 27
18 West Ham 26 6 6 14 32 49 -17 24
19 Burnley 26 4 6 16 28 51 -23 18
20 Wolves 27 1 7 19 18 50 -32 10
Athugasemdir
banner
banner