Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
   sun 22. mars 2026 19:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Þórir Jóhann fékk langþráð tækifæri gegn Roma
Mynd: EPA
Þórir Jóhann Helgason fékk sjaldgæft tækifæri hjá Lecce gegn Roma í ítölsku deildinni í kvöld.

Robinio Vaz kom Roma yfir eftir tæplega klukkutíma leik eftir fyrirgjöf frá Mario Hermoso. Vaz kom inn á sem varamaður aðeins sex mínútum áður. Þetta reyndist sigurmarkið.

Þórir Jóhann byrjaði á bekknum en kom inn á þegar fimm mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Þetta var fyrsti leikurinn hans fyrir liðið síðan 6. janúar þegar hann kom inn á sem varamaður einmitt gegn Roma.

Roma er í 6. sæti með 54 stig, jafn mörg stig og Juventus sem er í 5. sæti. Lecce er í 18. sæti með 27 stig.

Kenneth Taylor skoraði bæði mörk Lazio í sigri gegn Bologna. Lazio er í 8. sæti með 43 stig, stigi á undan Bologna sem er í 9. sæti.

Davide Zappacosta var hetja Atalanta sem lagði Verona af velli. Atalanta er í 7. sæti, stigi á eftir Roma. Verona er í 19. sæti með 18 stig, níu stigum frá öruggu sæti.

Atalanta 1 - 0 Verona
1-0 Davide Zappacosta ('37 )

Bologna 0 - 2 Lazio
0-0 Riccardo Orsolini ('51 , Misnotað víti)
0-1 Kenneth Taylor ('72 )
0-2 Kenneth Taylor ('82 )

Roma 1 - 0 Lecce
1-0 Robinio Vaz ('57 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 22 2 5 65 23 +42 68
2 Milan 30 18 9 3 47 23 +24 63
3 Napoli 30 19 5 6 46 30 +16 62
4 Como 30 16 9 5 53 22 +31 57
5 Juventus 30 15 9 6 52 29 +23 54
6 Roma 30 17 3 10 40 23 +17 54
7 Atalanta 30 13 11 6 41 27 +14 50
8 Lazio 30 11 10 9 31 28 +3 43
9 Bologna 30 12 6 12 38 36 +2 42
10 Sassuolo 30 11 6 13 36 40 -4 39
11 Udinese 30 11 6 13 35 42 -7 39
12 Parma 30 8 10 12 21 38 -17 34
13 Genoa 30 8 9 13 36 42 -6 33
14 Torino 30 9 6 15 34 53 -19 33
15 Cagliari 30 7 9 14 31 42 -11 30
16 Fiorentina 29 6 10 13 34 43 -9 28
17 Cremonese 30 6 9 15 25 44 -19 27
18 Lecce 30 7 6 17 21 40 -19 27
19 Verona 30 3 9 18 22 52 -30 18
20 Pisa 30 2 12 16 23 54 -31 18
Athugasemdir
banner