Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 22. maí 2021 16:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Lincoln í úrslit umspils þrátt fyrir tap
Mynd: Getty Images
Sunderland 2-1 Lincoln
1-0 Ross Stewart ('13)
2-0 Charlie Wyke ('33)
2-1 Tom Hopper ('56)

Sunderland og Lincoln mættust í dag í seinni viðureign liðanna um sæti í úrslitum umspils um sæti í Championship deildinni á næstu leiktíð.

Fyrri leik liðanna lauk með 2-0 sigri Lincoln.

Í dag fór svo að Sunderland vann með tveimur mörkum gegn einu en það dugði ekki til þar sem Lincoln vann viðureignina samanlagt 3-2.

Sunderland byrjaði leikinn vel en staðan var orðin 2-0 eftir um það bil hálftíma leik. Aiden McGeady lagði bæði mörkin upp á Ross Stewart og Charlie Wyke. Tom Hooper minnkaði muninn fyrir Lincoln.

Lincoln mætir Blackpool í úrslitum en Daníel Leó Grétarsson er á mála hjá Blackpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner