Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Fyrirliðinn Eiður Aron: Við ætlum að vinna þessa deild
Álitið - Hver verður markakóngur?
Besta spjallið - Horfðu á upphitunarþáttinn í mynd
Ian Jeffs: Veit ekki hverjar geta mætt á morgun
Guðni Eiríks: Sagði að ef hann myndi ekki taka ákvörðunina þá myndi ég gera það fyrir hann
Álitið - Hver verður efnilegastur?
Álitið - Hverjir verða meistarar og hver verður bestur?
Óskar Hrafn hefur ekki tíma fyrir gæðastjórann
Aron Einar: Það hefur aldrei vantað upp á hjá honum
Arnar vonsvikinn: Rosalega mikill klaufagangur
Gylfi: Jákvætt að þetta gerist ekki í undankeppni
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
banner
   mán 22. júní 2015 21:49
Valur Páll Eiríksson
Freyr Alexanders: Sá ekki markið
Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis.
Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis, var nokkuð brattur eftir 1-1 jafntefli Leiknis við Fylki í Breiðholti í kvöld. Leiknir jafnaði leikinn mínútu fyrir leikslok með marki eftir hornspyrnu. Aðspurður um spilamennsku liðsins hafði Freyr þetta að segja:

Lestu um leikinn: Leiknir R. 1 -  1 Fylkir

„Hún var bara ágæt, ekkert frábær en hún var ekkert slök heldur. Við höfum spilað betur og fengið engin stig. Við náum ekki rytma oft á tíðum og fannst það aðallega vera varnarlega sem við náum ekki takti. Þá er ég aðallega að tala um í fyrri hálfleik þar sem mér fannst við of langt frá þeim."

Þá var Freyr spurður út í markið sem Leiknir fékk á sig en það var heldur neyðarlegt eftir langt innkast Fylkismanna.

„Ég sá það reyndar ekki, ég var að tala við Stjána(innsk. Kristján Pál Jónsson, leikmann Leiknis), en bara langt innkast og mark, ég er ósáttur við það. Fyrir utan það fær Albert eitt færi en við sköpuðum ekki mörg færi heldur. Þetta var bara stöðubarátta og tvö lið sem langaði í þrjú stig og þurftu á þremur stigum að halda en endar með einu stigi á lið og það er bara niðurstaðan í kvöld." sagði Freyr.

Einnig talaði hann um mikilvægi þess að enda taphrinu Leiknis og fleira. Viðtalið má sjá í heild að ofan.
Slapp
banner