FH fengu Keflvíkinga í heimsókn á Kaplakrikavöll í dag þegar 18.umferð Bestu deildar karla hélt áfram göngu sinni.
FH hafði fyrir leikinn ekki unnið leik í deildinni frá því Eiður Smári Guðjohnsen og Sigurvin Ólafsson tóku við stjórn liðsins en það breyttist allt í kvöld þegar FH bar sigurorð af Keflvíkingum.
Lestu um leikinn: FH 3 - 0 Keflavík
„Þarft ekki að vera svona hissa þegar þú spyrð að þessu." Sagði Eiður Smári Guðjohnsen hlægjandi þegar hann var aðspurður um tilfininguna eftir fyrsta sigurleikinn í deild.
„Auðvitað er það frábær tilfining og við byrjðuðum leikinn af krafti og byrjuðum virkilega vel og svo lendum við í þeirri stöðu að vera einum fleirri þá kannski verður leikplanið aðeins öðruvísi hjá okkur. Mér fannst við hreyfa boltann vel og við héldum ákefð og við héldum góðu tempói í leiknum og út frá því þá uppskárum við þrjú mörk og rosalega ljúft að fara í hálfleik 2-0 yfir."
FH fengu gríðarlegan stuðning úr stúkunni sem gaf FH mikinn kraft.
„Já við vissum það allir, við sem þjálfarateymi og við sem lið, leikmenn inni í klefa að við skuldum eitthvað hér og sem betur fer gátum við byrjað aðeins hér að borga tilbaka því stuðningurinn við þá og okkur hefur verið frábær og við vitum að hann verður frábær og það er geggjuð tilfining að koma loksins inn í klefa og geta fagnað."
Nánar er rætt við Eið Smára Guðjohnsen þjálfara FH í spilaranum hér fyrir ofan.
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























