Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 24. maí 2021 20:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Solskjær: Þetta er sekt, ég tek hana á mig
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, sektaði sjálfan sig á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik Evrópudeildarinnar.

Man Utd mætir Villarreal í úrslitaleiknum á miðvikudagskvöld. Leikið er í Gdansk í Póllandi.

Solskjær sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag en hann gleymdi að slökkva á símanum. Þegar fjölmiðlamaður reyndi að spyrja Norðmanninn spjörunum úr, þá hringdi síminn. Ekki einu sinni, heldur tvisvar.

Það er sekt ef síminn hringir á fundum, og það á ekki bara við um leikmenn Manchester United greinilega.

„Þetta er sekt, ég tek hana á mig," sagði Solskjær og bað fjölmiðlamanninn að spyrja aftur.

Hér að neðan má sjá myndband af þessu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner