Riyad Mahrez og Benjamin Mendy, liðsfélagar í liði Englandsmeistara Manchester City, voru í spurningakeppni á Sky Sports á dögunum.
Spyrillinn spurði spurninga og leikmaðurinn sem var sneggri að ýta á takka fékk svarréttinn.
Eftir 5 mínútur af spurningum var spurt hvaða leikmaður væri búinn að tilkynna að hann mun yfirgefa Man City næsta sumar.
Mahrez var snöggur að ýta á takkann og segja: „Fernandinho!" en spyrillinn var snöggur að leiðrétta rangt svar. Það er David Silva sem er búinn að tilkynna að hann yfirgefur félagið.
Þessu fylgdi vandræðaleg þögn og skemmtilegt glott frá Mendy. Það er nokkuð augljóst að Mahrez talaði af sér þarna, enda hefur Fernadninho ekki tilkynnt neitt slíkt opinberlega.
Brasilíski varnartengiliðurinn er þó 34 ára og rennur samningur hans út næsta sumar. Hann verður 35 ára í maí.
Uppljóstrunin skemmtilega kemur eftir rétt rúmlega 5 mínútur af myndbandinu hér fyrir neðan.
Athugasemdir