Guardian segir frá því í dag að framtíð Scott Parker sem stjóra Burnley sé í óvissu.
Parker á eftir að ræða við Alan Pace, stjórnarformann Burnley, um næsta tímabil en líkur eru á því að Parker muni hætta. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.
Parker á eftir að ræða við Alan Pace, stjórnarformann Burnley, um næsta tímabil en líkur eru á því að Parker muni hætta. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.
Parker tók við Burnley sumarið 2024 af Vincent Kompany og kom liðinu aftur upp í ensku úrvalsdeildina. Stoppið þar var hins vegar stutt og leikur Burnley aftur í Championship á næsta tímabili.
Samkvæmt Guardian er Steven Gerrard á óskalista Burnley ef Parker yfirgefur félagið. Craig Bellamy er annað nafn sem heyrist í umræðunni. Hann er í dag landsliðsþjálfari Wales og hefur náð flottum árangri í því starfi.
Gerrard var síðast stjóri Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu en þar áður stýrði hann Rangers og Aston Villa með misjöfnum árangri.




