Xabi Alonso er sagður vera taka við sem stjóri Chelsea eftir tímabilið en enskir fjölmiðar greina frá því að hann muni skrifa undir fjögurra ára samning.
Calum McFarlane tók við sem bráðabirgða stjóri af Enzo Maresca sem var látinn taka pokann sinn um áramótin.
Calum McFarlane tók við sem bráðabirgða stjóri af Enzo Maresca sem var látinn taka pokann sinn um áramótin.
McFarlane sagði eftir tap liðsins í úrslitum enska bikarsins gegn Man City í gær að Alonso muni taka við góðu búi.
„Þetta er mjög hæfileikaríkur hópur. Mikil gæði í honum. Menn hafa efast um ástríðuna og hjartað á tímum en það er ekki hægt að gera það miðað við frammistöðuna í síðustu tveimur leikjum," sagði McFarlane.



