Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   lau 16. maí 2026 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ronaldo og félagar töpuðu úrslitaleik Meistaradeildarinnar
Mynd: EPA
Al-Nassr mætti japanska félaginu Gamba Osaka í úrslitum Meistaradeildar Asíu 2 (B keppni Meistaradeildarinnar) í kvöld.

Leikurinn fór fram á heimavelli Al-Nassr og sádi arabíska félagið var talið líklegra til að vinna fyrsta Meistaradeildartitil fyrir sádi arabískt félag.

Sadio Mane, Cristiano Ronaldo og Joao Felix voru í byrjunarliði Al-Nassr. Kingsley Coman kom inn á sem varamaður

Þrátt fyrir að vera með þessar risastóru fallbyssur í liðinu tókst þeim ekki að skora. Deniz Hummet skoraði eina mark leiksins eftir hálftíma leik fyrir Gamba Osaka og tryggði því japanska liðinu sigurinn.

Al-Nassr er á toppi sádi arabísku deildarinnar með tveggja stiga forystu á Al-Hilal fyrir lokaumferðina sem fram fer þann 21. maí.
Slapp