Bruno Fernandes er einni stoðsendingu frá því að jafna stoðsendingamet Kevin De Bruyne og Thierry Henry.
Bruno Fernandes var valinn besti leikmaður enska úrvalsdeildartímabilsins af íþróttafréttamönnum og voru ýmsir fótboltaáhugamenn undrandi á því að Declan Rice, lykilmaður í sterku liði Arsenal, hafi ekki hlotið verðlaunin.
Fernandes hefur verið burðarstólpur Manchester United á undanförnum árum og hefur stigið sérstaklega mikið upp á yfirstandandi tímabili þar sem Rauðu djöflarnir eru búnir að eiga frábæran seinni hluta leiktíðar undir stjórn Michael Carrick.
Rice hefur sinnt afar mikilvægu hlutverki í liði Arsenal sem er tveimur sigrum frá því að tryggja sér sinn fyrsta Englandsmeistaratitil síðan 2004 og einum sigri frá því að tryggja sér fyrsta Meistaradeildartitil sögu sinnar.
„Declan Rice er magnaður fótboltamaður og ég lít up til hans. Þetta er leikmaður sem ég vildi sjá koma til Manchester United, ég var virkilega leiður þegar ég sá að hann valdi Arsenal. Mér hefur alltaf liðið eins og hann myndi passa fullkomlega inn í klúbbinn hérna. Ég lít fyrst og fremst upp til hans sem manneskju því ég þekki hann frá því að við vorum að æfa saman í Algarve," sagði Bruno í viðtali við samtök íþróttafréttamanna og var spurður hvort Man Utd átti einhverja möguleika á að kaupa Rice á sínum tíma, en hann var seldur til Arsenal fyrir 105 milljónir punda sumarið 2023.
„Ég er ekki viss um hvort þetta hafi verið rétta augnablikið fyrir hann til að skipta yfir til United, við vorum ekki í sérstaklega góðri stöðu. Þrátt fyrir það leið mér eins og hann væri fullkominn fyrir félagið bæði fótboltalega séð og sem einstaklingur. Hann er fagmaður fram í fingurgóma.
„Hann er svo góður miðjumaður og getur leyst mörg mismunandi hlutverk. Hans hlutverk snýst ekki um að skora eða leggja upp mörk eins og hjá mér, það er mjög erfitt að bera okkur saman sem fótboltamenn. Við spilum mismunandi stöður í tveimur liðum sem eru afar frábrugðin taktísklega séð. Hann er búinn að vera einn af allra bestu leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu."
09.05.2026 10:52
Bruno valinn leikmaður tímabilsins af íþróttafréttamönnum




