Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   sun 17. maí 2026 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rooney mögulega á leið í aðgerð eftir að hafa varið skot frá Pickford
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Wayne Rooney gæti þurft að leggjast undir hnífinn eftir að hafa varið skot frá Jordan Pickford, markverði Everton.

Rooney var að taka upp innslag fyrir BBC þar sem hann tók viðtal við Pickford og þeir fóru síðan út á völl þar sem hann slasaðist.

Hann var í settinu hjá BBC í kringum úrslitaleik enska bikarsins í gær þar sem var vakin athygli á því að hann væri í gipsi og hann greindi frá meiðslunum.

Hann sagði frá því að hann muni hitta sérfræðing á morgun og þá kemur betur í ljós hvort hann þurfi á aðgerð að halda.
Slapp
banner
banner