Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
banner
   fös 15. maí 2026 19:04
Ívan Guðjón Baldursson
Mjólkurbikar kvenna: Valur féll úr leik á heimavelli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 2 - 3 Grindavík/Njarðvík
0-1 Sophia Faith Romine ('19)
0-2 Ása Björg Einarsdóttir ('51)
1-2 Málfríður Anna Eiríksdóttir ('76)
1-3 Ása Björg Einarsdóttir ('86)
2-3 Ágústa María Valtýsdóttir ('90, víti)

Lestu um leikinn: Valur 2 -  3 Grindavík/Njarðvík

Valur og Grindavík/Njarðvík áttust við í fyrsta leik 16-liða úrslita Mjólkurbikars kvenna og úr varð skemmtilegur slagur. Valur byrjaði betur en sameinað lið gestanna vann sig inn í leikinn og náði forystunni eftir laglegt einstaklingsframtak hjá Sophia Romine. Sophia fékk boltann á vinstri kantinum og átti góðan sprett sem endaði með skoti utan vítateigs og frábæru marki.

Restin af fyrri hálfleiknum var nokkuð róleg og tvöfaldaði Ása Björg Einarsdóttir forystuna í upphafi síðari hálfleiks með öðru mögnuðu einstaklingsframtaki. Ása fékk boltann á hægri kanti, keyrði í átt að vítateignum og setti boltann undir samskeytin með glæsilegu skoti.

Leikurinn var afar líflegur í kjölfarið af seinna markinu þar sem bæði lið fengu góð tækifæri til að bæta við marki. Boltinn rataði þó ekki í netið fyrr en á 76. mínútu þegar Málfríður Anna Eiríksdóttir skallaði hornspyrnu í netið.

Valskonur tóku stjórn á leiknum á þessum tímapunkti og lágu á gestunum en fengu mark í bakið eftir skyndisókn. Ása Björg þaut fram í miklu kapphlaupi við varnarmann eftir langa sendingu upp völlinn og rauk Esther Júlía Gustavsdóttir úr markinu en Ása vann kapphlaupið.

Esther reyndi að tækla boltann en endaði þess í stað á að tækla samherja sinn og því var Ása sloppin ein í gegn og skoraði í autt markið.

Heimakonur voru þó ekki á því að gefast upp og fékk Ágústa María Valtýsdóttir dæmda vítaspyrnu á 90. mínútu. Hún steig sjálf á punktinn og minnkaði muninn aftur niður í eitt mark.

Níu mínútum var bætt við í uppbótartíma en Val tókst ekki að skapa mikla hættu. Ása Björg var nálægt því að fullkomna þrennu þegar hún slapp ein í gegn en náði ekki að skora.

Frábær sigur fyrir Grindavík/Njarðvík sem hefnir sín eftir að hafa tapað á Hlíðarenda í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.
Slapp
banner