Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   lau 16. maí 2026 12:43
Brynjar Ingi Erluson
Carragher segir leikmenn Liverpool veikburða - „Þeir voru teknir í bakaríið“
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fyrrum Liverpool-maðurinn Jamie Carragher segist ekki ánægður með það sem hann hefur séð af liðinu á þessari leiktíð og það þurfi róttækar breytingar til þess að koma liðinu aftur í fremstu röð.

Liverpool hefur ekki riðið feitum hesti á þessari leiktíð og eru hinar ýmsu ástæður fyrir því. Diogo Jota, leikmaður liðsins, lést í hræðilegu bílslysi rétt áður en hann átti að mæta á æfingar á undirbúningstímabilinu, leikstíll Slot er ekki að virka, leikmenn virðast hættir að trúa á verkefnið og meiðsli auðvitað spilað stóra rullu.

Í gær tapaði Liverpool fyrir Aston Villa, 4-2, á Villa Park og er Carragher í hálfgerðu losti með að liðið sé í baráttu um Meistaradeildarsæti miðað við spilamennsku.

„Liverpool er með allt of marga veikburða leikmenn, bæði andlega og líkamlega, og það verður að laga það vandamál.“

„Það er útlit fyrir að Arne Slot verði maðurinn sem á að laga þetta á næsta tímabili, en þessi úrslit gera ekkert varðandi tilfinningar og skoðanir stuðningsmanna varðandi stöðuna. Liverpool skarar ekki fram úr í neinu og virðist þetta bara vera algert miðlungslið. Þeir voru teknir í bakaríið,“
sagði Carragher.

Hann segir Virgil van Dijk, fyrirliða liðsins, ekki hafa verið upp á sitt besta í vörninni, en að hann fái ekki mikla hjálp frá liðsfélögum sínum.

„Þetta er fyrsta tímabilið þar sem Virgil van Dijk lítur út fyrir að vera mennskur og það er að hafa áhrif á aðra. Þegar þú horfir á samherja hans þá segir fólk mér hversu góðir þeir eru, en þegar Van Dijk er ekki upp á sitt besta þá þarftu þá til að stíga upp og hjálpa honum aðeins. Það gerist bara ekki.“

Liverpool er í níunda sæti á töflunni ef horft er á stig á útivelli eða með aðeins 24 stig úr nítján leikjum.

„Þegar þú horfir á þessi úrslit á útivelli þá finnst mér það segja svo margt um persónuleika þinn og karakter. Ég á bara erfitt með að trúa því að Liverpool sé í fimmta sæti deildarinnar. Maður hugsar bara um öll þau mörk sem liðið hefur fengið á sig og þeir hafa aldrei verið ógnandi fram á við og eru með þennan árangur á útivelli og samt í fimmta? Vá!“ sagði Carragher.
Slapp
banner
banner