Markvörðurinn Telma Ívarsdóttir spilaði sinn fyrsta leik fyrir Inter í lokaumferð ítölsku deildarinnar í dag. Telma kom til Inter á láni frá Rangers í febrúar. Cecilía Rúnarsdóttir var á bekknum ásamt Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur.
Inter tapaði 3-0 gegn Como en liðið endar í 2. sæti með 44 stig, 11 stigum á eftir ítölsku meisturunum í Roma.
Inter tapaði 3-0 gegn Como en liðið endar í 2. sæti með 44 stig, 11 stigum á eftir ítölsku meisturunum í Roma.
Birta Georgsdóttir var ekki með Genoa sem tapaði gegn Roma 2-0.
Genoa endaði á botninum með 10 stig og er því fallið niður í B-deildina.




