Eddie Howe, stjóri Newcastle, segir að það hafi verið gríðarlega erfitt að sjá á eftir Callum Wilson þegar hann yfirgaf félagið í fyrra eftir fimm ára veru.
Wilson, sem er leikmaður West Ham í dag, heimsækir gömlu félagana í dag en West Ham þarf á sigri að halda í fallbaráttunni.
„Þetta var erfitt fyrir hann. Hann vildi vera aðalmaðurinn, hann vildi spila alla leiki. Það var tímabil þar sem hann var á eftir Alexander Isak og fékk ekki þær mínútur sem hann vildi," sagði Howe.
„Ástæðan fyrir því að hann hefur náð árangri er sú að honum finnst hann vera besti framherjinn hvar sem hann er. Þetta var rétti tíminn fyrir hann að fara en það er allltaf sárt, það var sárt fyrir okkur að láta hann fara því hann er góður fyrir hópinn. Strákarnir dýrkuðu hann, við dýrkuðum hann, unnum með honum lengi og treystum honum."


