Næstsíðasta umferð ítalska deildartímabilsins hófst í morgun og tókst AS Roma að klifra yfir Juventus í meistaradeildarbaráttunni.
Juventus tapaði afar óvænt á heimavelli gegn Fiorentina sem siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar. David de Gea átti stórleik á milli stanga gestaliðsins frá Flórens og fékk Albert Guðmundsson að spila síðasta hálftíma leiksins.
Cher Ndour kom Fiorentina yfir í fyrri hálfleik og lágu heimamenn í liði Juventus í sókn í síðari hálfleik. Dusan Vlahovic kom boltanum í netið á 70. mínútu en var naumlega rangstæður. Þrettán mínútum síðar innsiglaði Rolando Mandragora frækinn sigur Fiorentina með glæsilegu skoti utan vítateigs, svo lokatölur urðu 0-2.
Juventus dettur niður í sjötta sæti Serie A fyrir lokaumferðina þegar lærlingar Luciano Spalletti heimsækja nágranna sína í liði Torino.
Öll liðin í kringum Juventus unnu sína leiki í dag. Napoli er í öðru sæti eftir þægilegan sigur á Pisa þar sem Rasmus Höjlund og Scott McTominay komust báðir á blað og þá er AC Milan í þriðja sæti eftir að mörk frá Christopher Nkunku og Zachary Athekame tryggðu liðinu nauman sigur í Genúa. Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn í liði Genoa.
AS Roma stekkur upp í fjórða sætið eftir fjórða deildarsigurinn í röð. Roma spilaði við nágranna sína í Lazio í höfuðborgarslagnum og hafði betur þökk sé tvennu frá miðverðinum Gianluca Mancini sem skoraði tvö skallamörk eftir hornspyrnur frá Niccoló Pisilli og Paulo Dybala.
Að lokum fer Como upp í fimmta sæti eftir nauman sigur á Parma, en Nico Paz var ekki með vegna meiðsla. Alberto Moreno, fyrrum bakvörður Liverpool, skoraði eina mark leiksins.
Það er rosaleg spenna fyrir lokaumferðina þar sem Milan, Roma, Como og Juventus eru að berjast um síðustu tvö meistaradeildarsætin.
Juventus 0 - 2 Fiorentina
0-1 Cher Ndour ('34 )
0-2 Rolando Mandragora ('83 )
Pisa 0 - 3 Napoli
0-1 Scott McTominay ('21 )
0-2 Amir Rrahmani ('27 )
0-3 Rasmus Hojlund ('90 )
Genoa 1 - 2 Milan
0-1 Christopher Nkunku ('50 , víti)
0-2 Zachary Athekame ('81 )
1-2 Johan Vasquez ('86 )
Roma 2 - 0 Lazio
1-0 Gianluca Mancini ('40 )
2-0 Gianluca Mancini ('66 )
Rautt spjald: ,Wesley, Roma ('70)Nicolo Rovella, Lazio ('70)
Como 1 - 0 Parma
1-0 Alberto Moreno ('58 )

