Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   sun 17. maí 2026 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Grátbiðja Sarri um að mæta
Mynd: EPA
Mauricio Sarri, stjóri Napoli, hótar að mæta ekki á leik liðsins gegn Roma í grannaslag í næst síðustu umferð ítölsku deildarinnar í dag.

Sarri er ósáttur með tímasetninguna á leiknum en hann hefst klukkan 10.

Serie A og lögregluyfirvöld funduðu í nokkra daga um tímasetninguna og komust að þessari niðurstöðu.

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að leikmenn liðsins hafi grátbeðið hann um að endurskoða ákvörðun sína til að vera til staðar fyrir þá.

Það er óvissa um framtíð hans hjá félaginu en þetta verður líklega hans síðasti grannaslagur hjá félaginu, þar sem það ríkir spenna milli hans, Claudio Lotito, forseta félagsins, og stjórnenda.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner