Adam Wharton, leikmaður Crystal Palace, segir hann og liðsfélaga hans ekki ákveða titilbaráttuna á Englandi.
Palace gerði 2-2 jafntefli við Brentford í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem Wharton skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið.
Hann kom til Palace frá Blackburn Rovers í byrjun árs 2024.
„Maður hefur lengi beðið eftir þessu. Ég er í skýjunum með það, en synd að við náðum ekki að landa öllum þremur stigunum.“
„Tók kannski heldur langan tíma. Ég hefði átt að skora áður og þetta var líklega versta skot sem ég hef tekið, en ég tek því.“
„Ég held áfram að eiga ömurlegt skot og vona að þau fari í netið. Við tökum þessu og frammistaðan var góð. Við höfum verið að spila marga leiki og orðnir svolítið þreyttir, en ég er stoltur af frammistöðunni gegn liði sem er að berjast um að komast í Evrópukeppni,“ sagði Wharton.
Næstu helgi fer lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fram. Palace mætir Arsenal og má segja að Palace sé í stöðu til að ákveða hvaða lið mun vinna ensku úrvalsdeildina en Wharton segir hann og liðsfélaga sína ekki hugsa það þannig.
„Við ákveðum ekki titilinn í næstu viku því það hafa verið 37 leikir á þessu tímabili. Við eigum annan leik nokkrum dögum eftir þann leik. Við erum ekki að reyna að vinna þá svo þeir vinni ekki titilinn. Það kemur okkur ekkert við. Við erum að einbeita okkur að því sem við erum að gera og sjá til þess að við erum í réttri stöðu fyrir úrslitaleikinn í Sambandsdeildinni,“ sagði Wharton.



