Davíð Snær Jóhannsson lagði upp sigurmark Álasunds í 3-2 sigri liðsins á Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Ólafur Guðmundsson byrjaði hjá Álasundi en Davíð kom inn af bekknum stundarfjórðungi fyrir leikslok.
Fjórum mínútum síðar lagði Davíð upp sigurmarkið fyrir Endre Osenbroch.
Þetta var fyrsti sigur Álasunds í norsku deildinni á þessari leiktíð en nýliðarnir eru í næst neðsta sæti með 6 stig.
Júlíus Mar Júlíusson lék allan leikinn með Kristiansund sem tapaði fyrir Molde, 1-0. Hrannar Snær Magnússon sat allan tímann á bekknum hjá Kristiansund sem er í 12. sæti með 8 stig.
Viðar Ari Jónsson byrjaði hjá Ham/Kam sem tapaði fyrir Fredrikstad, 2-1. Ham/Kam er í 7. sæti með 13 stig.
Júlíus Magnússon var í byrjunarliði Elfsborg sem gerði 1-1 jafntefli við Halmstad. Ari Sigurpálsson var ónotaður varamaður hjá Elfsborg sem er í 2. sæti með 15 stig.
Róbert Frosti Þorkelsson er áfram með fast sæti í byrjunarliði GAIS, en liðið gerði 1-1 jafntefli við Degerfors. GAIS er í 8. sæti með 9 stig.
Guðlaugur Victor Pálsson var í vörninni hjá Horsens sem gerði 1-1 jafntefli við Hvidovre í meistarariðli dönsku B-deildarinnar. Horsens er í öðru sæti með 48 stig, einu stigi fyrir ofan Hilleröd þegar tvær umferðir eru eftir. Horsens mætir toppliði Lyngby í næstu umferð.


