Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fös 15. maí 2026 22:21
Ívan Guðjón Baldursson
Arne Slot: Strákarnir gáfust aldrei upp
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Liverpool steinlá á útivelli gegn Aston Villa er liðin mættust í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Heimamenn leiddu í hálfleik og náðu aftur forystunni snemma í síðari hálfleik eftir að Dominik Szoboszlai rann afar óheppilega með boltann og hleypti Morgan Rogers þannig í gegn.

„Þetta hrundi eftir að við lentum 2-1 undir. Strákarnir stóðu sig vel lengst af gegn sterkum andstæðingum á erfiðum útivelli, en þetta hrundi niður í seinni hálfleik. Við náðum að minnka muninn í uppbótartíma sem er jákvætt merki, strákarnir gáfust aldrei upp," sagði Arne Slot, þjálfari Liverpool, í viðtali að leikslokum.

„Við lentum í erfiðleikum með hraðann þeirra, ákefðina og gæðin. Mér fannst við eiga fínan fyrri hálfleik og við vorum góðir fyrstu 10 mínúturnar í síðari hálfleik. Við vorum nálægt því að taka forystuna þegar við fengum mark frá þeim í bakið eftir afar óheppilegt atvik. Við höfum fengið mikið af skrýtnum mörkum á okkur á tímabilinu en þetta er í fyrsta sinn sem það gerist með þessum hætti.

„Villa var sterkara liðið í síðari hálfleik og verðskuldar sigurinn."


Framtíð Slot hefur verið mikið í umræðunni útaf slæmu gengi Liverpool en starfið hans virðist vera öruggt í sumar. Slot neitaði að svara spurningum um framtíð sína við stjórnvölinn hjá Liverpool, í staðinn vísaði hann í svör sín úr síðustu fréttamannafundum.

„Þetta er mjög pirrandi fyrir mig og alla í kringum Liverpool, engum finnst þetta skemmtilegt. Þetta er búið að vera svona tímabil hjá okkur og núna er bara einn leikur eftir. Við þurfum að vinna næstu helgi og svo verða hlutirnir betri í sumar.

„Við höfum misst marga lykilmenn í meiðsli sem hefur leitt til þess að við erum búnir að lenda í vandræðum með að nýta færin okkar og höfum átt erfitt með verjast einföldum sóknum.

„Núna snýst þetta allt um næsta leik. Við þurfum að hafa stuðningsmennina í fullu fjöri til að hjálpa okkur að tryggja sæti í Meistaradeildinni."


   15.05.2026 20:57
England: Aston Villa skoraði fjögur gegn Liverpool

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner