Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
   fös 15. maí 2026 21:39
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Anton Ingi: Mættum strax grimmar í byrjun og alveg til enda
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram er komið áfram í 8-liða úrslitin í Mjólkurbikar kvenna eftir frábæran 3-0 sigur á heimavelli gegn ÍA.

„Þetta er allavega fyrsti sigurinn á tímabilinu og bara einn af þeim mörkum sem skal koma." sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram eftir leik.


Lestu um leikinn: Fram 3 -  0 ÍA

Miðað við síðustu leiki, var frammistaðan betri?

„Við vorum allavega áræðnari í dag og skoruðum mörk, það hefur vantað í síðustu leikjum, þannig að það var mjög jákvætt."

Hvað er hægt að taka úr þessum leik?

„Fyrsti og annar bolti, við vorum ákveðnar. Mættum strax grimmar í byrjun og alveg til enda, það hefur svolítið vantað hjá okkur. Búið að vera dálítið kaflaskipt, en þetta er svona fyrsti leikurinn í sumar sem er ekki kaflaskiptur."

Er hægt að nýta þennan sigur til þess að koma liðinu aftur í form og gera betur í deildinni?

„Já. Þetta er bara eins og ég segi við þurftum að finna netmöskvana, það hefur vantað í síðustu leikjum. Við tökum það með okkur yfir í deildina vonandi og þurfum aðeins að stíga áfram á bensíngjöfina. Ná kannski aðeins að spila fulla leiki, ekki kaflaskipta í deild líka til þess að við séum að skópa sigrana. Við höfum ekkert verið lakari aðilinn í síðustu leikjum, það bara vantar svona herslu muninn. Það vonandi mun detta með okkur á miðvikudaginn."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner
banner