Skoski dómarinn John Beaton þurfti lögregluvernd eftir vítaspyrnudóm sem reitti stuðningsmenn Motherwell til reiði síðastliðið miðvikudagskvöld.
Staðan var jöfn 2-2 í viðureign Motherwell gegn Celtic þegar Beaton dæmdi vítaspyrnu fyrir hendi seint í uppbótartíma. Kelechi Iheanacho skoraði úr vítaspyrnunni til að halda titilvonum Celtic á lífi þar sem liðið er aðeins einu stigi á eftir Hearts fyrir lokaumferð deildartímabilsins.
Einhverjir stuðningsmenn heimaliðsins voru mjög óhressir með þennan vítaspyrnudóm og beindu reiði sinni að dómarateyminu. Beaton dæmdi upprunalega ekki vítaspyrnu en VAR-dómararnir sendu hann í skjáinn og þar breytti hann upphaflegu ákvörðun sinni.
Það tóku hótanir að berast til Beaton og ákvað ungur maður að deila heimilisfangi dómarans með bálreiðum stuðningsmönnum Motherwell. Þetta athæfi var tilkynnt til lögreglu sem sendi lögregluþjóna heim til Beaton til að tryggja öryggi fjölskyldu hans og var maðurinn ungi handtekinn fyrir brot á persónuverndarlögum.
Skoska fótboltasambandið hefur tjáð sig um atvikið og fordæmir ofbeldisfulla hegðun stuðningsmanna Motherwell sem og æsifréttamennsku breskra fjölmiðla.
„Við megum ekki leyfa svona hegðun að viðgangast. Við munum mæta þessu af fullri hörku," segir meðal annars í langri yfirlýsingu frá fótboltasambandinu.
14.05.2026 08:45
„Viðbjóðslegi“ dómurinn sem hefur gert allt brjálað í Skotlandi



