Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   lau 16. maí 2026 20:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Neuer tekur hanskana af hillunni og verður með á HM
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Julian Nagelsmann, landsliðsþjálfari Þýskalands, hefur sannfært Manuel Neuer um að taka landsliðshanskana af hillunni og spila fyrir þjóð sína á HM í sumar.

Neuer er orðinn fertugur en hann lagði hanskana á hilluna eftir EM 2024. Sky Sports í Þýskalandi greinir frá því að hann verði í landsliðshópnum fyrir HM nema eitthvað komi upp á.

Neuer var í markinu hjá Bayern í lokaumferð þýsku deildarinnar þegar liðið vann Köln 5-1 í dag en þurfti að fara af velli vegna meiðsla á kálfa eftir klukkutíma leik.

Þýski landsliðshópurinn verður opinberaður 21. maí. Liðið verður með Fílabeinsströndinni, Ekvador og Curacao í E-riðli á HM.
Slapp
banner
banner