Danski framherjinn Rasmus Höjlund er búinn að kveðja Manchester United fyrir félagaskipti sín til Napoli.
Ítalska stórveldið borgar í heildina 50 milljónir evra til að kaupa Höjlund aftur í ítalska boltann. Napoli borgaði 6 milljónir til að fá Höjlund á láni á upphafi tímabils með árangurstengdri kaupskyldu sem hljóðaði upp á 44 milljónir til viðbótar.
Höjlund er kominn með 15 mörk og 8 stoðsendingar í 43 leikjum í öllum keppnum með Napoli. Hann skoraði og lagði upp í þægilegum sigri gegn Pisa í dag sem tryggði Napoli þátttöku í Meistaradeildinni í haust.
„Þetta mark er mjög táknrænt útaf því að það hjálpar Napoli að tryggja meistaradeildarsæti og þar af leiðandi er ég orðinn leikmaður félagsins. Ég er núna opinberlega orðinn leikmaður Napoli og þarf að kveðja Manchester United sem er skrýtin tilfinning. Mér hefur liðið eins og leikmanni Napoli frá því að ég kom fyrst til félagsins," skrifaði Höjlund í færslu á samfélagsmiðlum.
„Það var æskudraumurinn minn að spila í rauðu treyjunni á Old Trafford og ég er þakklátur fyrir að hafa upplifað það. Markið sem ég skoraði í dag er táknrænt fyrir nýjan kafla á ferlinum. Ég mun leggja allt í sölurnar fyrir Napoli og ég vil þakka stuðningsmönnum, starfsmönnum og leikmönnum Manchester United fyrir samstarfið og að hafa hjálpað mér að láta drauminn rætast. Núna er kominn tími fyrir nýja drauma."



