Það fóru tveir leikir fram í 2. deild karla í kvöld. Haukar lögðu Fjölni að velli í fjörugum leik á meðan Hvíta riddaranum tókst að stöðva sigurgöngu Kára.
Í Hafnarfirði var staðan markalaus allt þar til Jón Arnar Barðdal náði forystunni fyrir Hauka á 61. mínútu.
Daði Snær Ingason tvöfaldaði forystuna áður en Egill Otti Vilhjálmsson kveikti aftur á leiknum með að minnka muninn í eitt mark.
Staðan var því 2-1 á lokakaflanum og gerði Gabríel Aron Sævarsson út um viðureignina á 89. mínútu. Hann innsiglaði 3-1 sigur Hauka sem jafna Fjölni á stigum, bæði lið eru núna með 6 stig eftir 3 umferðir.
Á sama tíma tókst Hvíta riddaranum að halda hreinu gegn markaóðum leikmönnum Kára sem höfðu unnið báða deildarleikina sína á upphafi tímabils og skorað í þeim níu mörk.
Í kvöld tókst þeim ekki að skora framhjá gestunum úr Mosfellsbæ svo lokatölur urðu 0-0.
Hvíti riddarinn er með þrjú stig eftir þrjár umferðir en Kári heldur toppsæti deildarinnar, með sjö stig.
Haukar 3 - 1 Fjölnir
1-0 Jón Arnar Barðdal ('61)
2-0 Daði Snær Ingason ('66)
2-1 Egill Otti Vilhjálmsson ('76)
3-1 Gabríel Aron Sævarsson ('89)
Kári 0 - 0 Hvíti riddarinn





