PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
„Var að reka á eftir hlutum sem hún á ekkert að vera að reka á eftir“
Thelma eftir fyrsta landsliðsmarkið: Ég er smá fúl samt
Talar um „ógeðslegan leik" - Þarf betri ramma um nýju reglurnar
Sara ræðir heimkomuna - „Var í Lyon þegar Dóri spyr mig fyrst hvort ég sé að koma heim“
Sævar Atli ræðir brottrekstur Freys - „Fengum ekki að kveðja hann“
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
   lau 16. maí 2026 18:28
Brynjar Óli Ágústsson
Jóhann Kristinn: Gæti ekki verið stoltari af þeim eins og einmitt núna
Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þrótt
Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þrótt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Tilfinningin er alveg rosalega góð auðvitað, og sigur tilfinning er góð tilfinning. Maður vill alltaf vill alltaf upplifa hana og það er hægt að venjast henni vel,'' segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þrótt, eftir 3-2 sigur gegn Breiðablik í 16-liða úrslit Mjólkurbikar kvenna.


Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 -  2 Breiðablik

Jóhann var mjög ánægður með sína stelpur í dag.

„Mér fannst frammistaðan mjög góð. Mér fannst við vera ofarlega í dag og varnarlega fannst mér við mjög sterkar. Mér fannst þetta verðskuldaður sigur og mér fannst leikurinn góður.''

Það er ekki langt síðan að þessi lið hittust seinast og sigraði Blikar þeim leik.

„Mér fannst við vera hikandi í þeim leik og svolítið að átta okkur á því hvernig þær spiluðu. Þær eru að spila aðeins öðruvísi heldur en undanfarin ár. Gæðin í þessu Blika liði eru mikil, þannig eitthvað getur alltaf látið undan eins og við sýndum hér í dag, en okkar stelpur mér fannst þær bara til fyrirmyndar og gæti ekki verið stoltari af þeim eins og einmitt núna.''

Rollins átti frábæra frammistöðu í dag með mark og stoðsendingu.

„Mér fannst hún bara mjög öflug og mér finnst hún hafa verið öflug. Hún er að hlaupa rosa mikið og vinnur varnarlega frábærlega fyrir liðið og þetta er eitthvað sem fer oft undir radarinn, okkur er alveg sama hvernig er verið að tala um hana. Hún vann fyrir sínu í dag og gott að hún fékk aðeins sviðsljósið líka, enda magnaður leikmaður og mikilvægur fyrir liðið,''

Jóhann var spurður út í hver væri drauma andstæðingur fyrir næstu 8-liða úrslitin.

„Ég á engan drauma andstæðing. Ég hef aldrei á minni ævi átt drauma andstæðing. Er það til?''

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner