Newcastle búið að setja verðmiða á Gordon - Barcola og Diomande orðaðir við Liverpool - Camavinga til Tottenham?
   sun 17. maí 2026 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Er ekki að hugsa um nýjan samning - „Möguleiki á að vinna úrvalsdeildina og síðan HM"
Mynd: EPA
Rodri, miðjumaður Man City, er með forgangsatriðin á hreinu en hann er ekki að hugsa um nýjan samning eins og er.

Samningur hans við félagið rennur út næsta sumar en hann hefur verið orðaður við Real Madrid.

Það er þó útlit fyrir að hann muni skrifa undir nýjan samning við Man City en hann er ekki að hugsa um það.

„Ég er bara að hugsa um liðið mitt og að enda tímabilið með sem flesta titla. Það er möguleiki á að vinna úrvalsdeildina og síðan HM. Ég hugsa ekki mikið um framtíðina. Til að vera hreinskilinn þá eru önnur verkefni í forgangi," sagði Rodri.
Slapp
banner