Newcastle tekur á móti West Ham í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og er mikið undir fyrir gestaliðið sem leikur undir stjórn Nuno Espírito Santo.
Newcastle siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar en Eddie Howe þjálfari er kröfuharður og vill að sínir menn endi mikið vonbrigðatímabil með sæmd.
Anthony Gordon er ekki í byrjunarliði Newcastle frekar en síðustu vikurnar og eru miklar líkur á því að kantmaðurinn verði seldur í sumar. FC Bayern er meðal áhugasamra félaga. Howe gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu frá jafntefli við Nottingham Forest um síðustu helgi, þar sem Harvey Barnes, Jacob Ramsey og Kieran Trippier eru í byrjunarliðinu.
Þetta er kveðjuleikur fyrir Trippier sem yfirgefur Newcastle í sumar.
West Ham þarf aftur á móti á sigri að halda í fallbaráttunni þar sem liðið er tveimur stigum frá öruggu sæti þegar tvær umferðir eru eftir af úrvalsdeildartímabilinu.
Nuno gerir aðeins eina breytingu á byrjunarliðinu sem tapaði naumlega gegn Arsenal um síðustu helgi. Callum Wilson byrjar í fremstu víglínu í stað Taty Castellanos sem sest á bekkinn.
Wilson var leikmaður Newcastle í fimm ár áður en hann skipti til West Ham í fyrra.
Newcastle: Pope, Trippier, Hall, Botman, Thiaw, Guimaraes, Tonali, Barnes, Ramsey, Woltemade, Osula
Varamenn: Ramsdale, Wissa, Gordon, Elanga, J.Murphy, Willock, Burn, A.Murphy, Neave
West Ham: Hermansen, Wan Bissaka, Mavropanos, Todibo, Disasi, Diouf, Fernandes, Soucek, Summerville, Bowen, Wilson
Varamenn: Areola, Walker-Peters, Kilman, Castellanos, Pablo, Magassa, Scarles, Potts, Kante



