Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
   lau 16. maí 2026 00:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ver Úlfu fram í rauðan dauðann: Hefði þá átt að vera rautt á báðar
Óskar Smári.
Óskar Smári.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úlfa Dís.
Úlfa Dís.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Smári og María Dögg unnu saman hjá Tindastóli.
Óskar Smári og María Dögg unnu saman hjá Tindastóli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var mjög kátur eftir bikarsigur gegn Þór/KA á Akureyri í kvöld. Stjarnan vann 1-4 sigur og fer áfram í 8-liða úrslitin.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst

Hann hrósaði leikmönnum sínum fyrir mark úr föstu leikatriði, tók ekki hrósinu fyrir skallamark Telmu Steindórsdóttur en hrósaði Andreu Mist Pálsdóttur fyrir spyrnuna og sagði hana vera einn besta spyrnumann deildarinnar. „Tvö mörk úr föstum leikatriðum í dag, get sætt mig við það að koma alltaf hingað og skora tvö úr föstum leikatriðum, en ég ætla ekki að taka neitt kredit fyrir það, þetta eru bara stelpurnar."

Lestu um leikinn: Þór/KA 1 -  4 Stjarnan

Snædís María Jörundsdóttir skoraði fyrstu tvö mörk Stjörnunnar og Óskar er mjög ánæðgur með hana.

„Hún sagði við mig í morgun að hún myndi skora í dag og ég fékk líka skilaboð frá góðum áttum, fyrrum þjálfara hennar, sem sagði mér líka að hún myndi skora. Ég varð sannfærður þegar þetta kom úr tveimur áttum. Hún var mjög öflug í dag, þetta gladdi mig, hún fékk dauðafæri gegn Þór/KA í deildinni en fór illa með þau. Það var töffaraskapur í henni að taka færin sín í dag."

Staðan var 1-1 í hálfleik en Stjarnan skoraði öll mörk seinni hálfleiksins og kláraði leikinn.

Eftir rúmlega 80 mínútna leik átti sér stað atvik fyrir framan varamannabekk Þórs/KA. Þjálfari Þórs/KA, Aðalasteinn Jóhann Friðriksson, sá leikmann Stjörnunnar gefa leikmanni Þórs/KA olnbogaskot.

„Ég sé þetta. Það þarf tvo til að dansa tangó, það er bara þannig. Mitt hlutverk er að verja mína leikmenn og ég mun verja mína leikmenn út í rauðan dauðann. Þær voru bara að kýtast, hrinda hvor annarri, og dómari leiksins gerði ekkert í því. Ég skil gremju Alla mjög vel, við ræddum þetta. Þetta (höggið) var ekki upp úr þurru, það var búið að kýtast á undan."

Finnst þér Úlfa Dís heppin að sleppa?

„Ef þú ætlar að gefa rautt spjald þá gefuru báðum leikmönnum rautt að mínu mati. Það er verið að ýta og ýta, en ég veit það ekki. Ég gagnrýndi dómarann síðast gegn FH, en mér fannst hún góð í dag, fannst línan hjá Sveini góð. Hvort hún var heppin veit ég ekki, við áttum gott samtal eftir að ég tók hana út af. Það var búið að kýtast í henni allan leikinn."

Mér líður út frá þínum svörum eins og þér líði eins og hún hafi verið heppin.

„Það gæti alveg verið, ég sé þetta ekki almennilega, en ég sé viðbrögð Maríu og ég þekki hana nú ágætlega. Mitt hlutverk er að verja leikmennina mína. Eigum við ekki að segja að þetta hafi allt bara verið samkvæmt bókinni," segir Óskar Smári og brosir.

Hann sagðist vilja heimaleik í 8-liða úrslitunum og sagði óskadráttinn vera að fá ÍBV í heimsókn.
Slapp
banner
banner