Hinn 38 ára gamli Nicolas Otamendi mun yfirgefa Benfica þegar samningur hans við félagið rennur út í sumar.
Argentínumaðurinn spilaði sinn síðasta leik fyrir félagið í gær þegar Benfica vann 3-1 sigur á Estoril í lokaumferð portúgölsku deildarinnar. Benfica fór taplaust í gegnum tímabilið undir stjórn Jose Mourinho en hafnaði í 3. sæti og spilar í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.
Otamendi gekk til liðs við Benfica frá Man City árið 2020 en ferill hans í Evrópu hófst árið 2010 þegar hann gekk til liðs við Porto frá Velez í heimalandinu. Hann hefur einnig spilað fyrir Valencia.
Samkvæmt heimildum portúgalska miðilsins A Bola er hann aftur á leið til Argentínu en næsti áfangastaður hans er River Plate.





