Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
banner
   sun 17. maí 2026 19:04
Brynjar Ingi Erluson
Sölvi Geir: Mæli ekki með því!
Sölvi Geir Ottesen
Sölvi Geir Ottesen
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór skoraði fyrir aftan miðju
Gylfi Þór skoraði fyrir aftan miðju
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var sáttur með sína menn í 2-0 sigrinum á ÍBV á Hásteinsvelli í dag.

Lestu um leikinn: ÍBV 0 -  2 Víkingur R.

Víkingar voru í löngu ferðalagi til að komast í leikinn sem var ekkert sérstaklega mikið fyrir augað.

Gestirnir náðu að klára þetta í seinni hálfleik með mörkum frá Óskari Borgþórssyni og Gylfa Þór Sigurðssyni.

„Sáttur og sáttur að hafa komið hingað. Þetta var langt ferðalag og tekið tæpar sex klukkustundar að fara frá Þorlákshöfn og höfðum mikið fyrir því að koma hingað og fara héðan með þrjú stig.“

„Ekki heldur það fallegasta sem ég hef séð. Mér fannst aðstæðurnar gera okkur erfitt fyrir og sérstaklega í fyrri hálfleik. Það blés sterkt á annað markið á móti okkur í fyrri hálfleik, en það voru góðir kaflar inn á milli þar sem við vorum að spila vel og koma okkur í kringum teiginn en það fór allt of mikill tími þegar boltanum var sparkað á hinn helminginn og komast aftur á hinn teiginn þar sem við vildum vera.“

„Þetta var betra í seinni hálfleik eins og við bjuggumst við, en að sama skapi hreifst ég af ÍBV, baráttuviljann og kraftinn í þeim fram að lok leiksins,“
sagði Sölvi við F'otbolta.net.

Víkingar náðu að nýta sér vindinn betur en heimamenn. Gestirnir innsveiflu horn á meðan Eyjamenn tóku þau stutt eða spyrntu boltanum í útsveiflu.

„Það kom mér svo sem á óvart að þeir tóku stutt horn og 'out swing' horn. Þegar þú ert með vindinn viltu frekar taka 'in-swing' horn og það er þannig. Það er kannski eitthvað sem þeir sáu sem ég veit ekki um þegar það kemur að föstum leikatriðum, en við töluðum um það að þetta gerist ekki að sjálfu sér í seinni hálfleik. Þegar þú færð vindinn í bakið þá heldur þú að það sé léttara og færð flugu í hausinn að þú getir slakað á. Við tókum það fyrir og fannst leikmenn mínir gera það vel að halda áfram að reyna og skapa sér og sá engan sofandahátt eða kæruleysi.“

Gylfi Þór skoraði frábært mark frá miðju Sölvi Geir mælir ekki með því fyrir markverði að spyrna boltanum á Gylfa.

„Það er búið að gerast fyrr á tímabilinu í fyrsta leik þar sem markvörðurinn var kominn út úr markinu og sendi á Gylfa. Ég mæli ekki með því,“ sagði hann í lokin.
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 9 1 0 34 - 6 +28 28
2.    KR 10 8 1 1 38 - 23 +15 25
3.    Fram 9 6 2 1 25 - 16 +9 20
4.    Breiðablik 9 4 3 2 22 - 15 +7 15
5.    Valur 10 5 0 5 19 - 22 -3 15
6.    ÍA 9 3 3 3 12 - 16 -4 12
7.    Keflavík 9 3 2 4 12 - 18 -6 11
8.    KA 9 3 1 5 12 - 15 -3 10
9.    Stjarnan 10 3 1 6 18 - 22 -4 10
10.    Þór 9 2 0 7 7 - 23 -16 6
11.    ÍBV 9 1 2 6 14 - 23 -9 5
12.    FH 9 0 2 7 12 - 26 -14 2
Slapp