Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
banner
   fös 15. maí 2026 16:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kári Kristjáns spáir í 37. umferð ensku úrvalsdeildarinnar
Kári Kristjánsson, leikmaður Þróttar.
Kári Kristjánsson, leikmaður Þróttar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Curtis Jones og Florian Wirtz.
Curtis Jones og Florian Wirtz.
Mynd: EPA
Takk Casemiro.
Takk Casemiro.
Mynd: EPA
Kári spáir þægilegum sigri hjá Arsenal.
Kári spáir þægilegum sigri hjá Arsenal.
Mynd: EPA
City heimsækir Bournemouth næsta þriðjudag.
City heimsækir Bournemouth næsta þriðjudag.
Mynd: EPA
Næst síðasta umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram um helgina. Það er verið að berjast á ansi mörgum vígstöðum og margt áhugavert sem getur gerst.

Kári Kristjánsson, leikmaður Þróttar, spáir í leikina sem eru framundan í umferðinni en þess má geta að bikarúrslitaleikur Chelsea og Manchester City fer jafnframt fram á morgun.

Aston Villa 1 - 1 Liverpool (19:00 í kvöld)
Hausinn á villa á úrslitaleiknum í næstu viku á meðan Slot er búinn að missa trúna frá hópnum og stuðningsmönnum frá sér og verður því fátt um fína drætti. 1-1 og allir fara sáttir í helgarfrí, Curtis Jones skorar fyrir hann Eyjólf Erik næstbesta styrktarþjálfara landsins.

Man Utd 3 - 1 Nottingham Forest (11:30 á sunnudag)
Carrick er að vinna sér inn starfið næstu 2 ár að minnsta kosti og mikið undir fyrir hann að klára tímabilið vel. Seinasti heimaleikur Casemiro sem verður þung stund svo hann klárar þetta á einum signature skalla eftir stoðsendingu frá þeim besta, Amad Diallo. #takkcase

Brentford 2 - 0 Crystal Palace (14:00 á sunnudag)
Það eru svona 8 vikur síðan Palace loggaði sig úr þessari deild. Þægilegur 2:0 sigur og þar sem leikurinn er kl 15 á laugardegi og enginn að horfa skorar Thiago 1-2.

Everton 2 - 2 Sunderland (14:00 á sunnudag)
Þróttarinn David Moyes hefur gert vel með þetta lið og Sunderland á sama tíma gert mjög vel með sína vegferð. En bæði lið eru kominn með hausinn á ströndina og sætta sig við 1 stig á mann. Beto eða Barry skorar, bara spurning hvor.

Leeds 1 - 2 Brighton (14:00 á sunnudag)
Meira undir fyrir Brighton en Leeds sem eru öruggir og klára því þennan leik. Welbeck setur eitt og Hinselwood hitt. Torsóttur sigur.

Wolves 2 - 1 Fulham (14:00 á sunnudag)
Fæst orða bera minnstu ábyrgð um þennan leik, í 38 leiki móti verða oft til svona leikir sem væri alveg eins hægt að sleppa. Góða skemmtun til þeirra tveggja sem taka þennan leik.

Newcastle 3 - 1 West Ham (16:30 á sunnudag)
Þessi er risastór en því miður fara öll stigin í norðrið og á endanum er þetta leikurinn sem fer með þetta hjá Nuno og félögum. Tottenham halda sér upp og Örn Bragi getur loksins farið að skora eitthvað af mörkum.

Arsenal 3 - 0 Burnley (19:00 á mánudag)
Ég verð því miður að vera faglegur og spá þessu 3:0 heimasigur.
ATH!! myndi fara loka fyrir X, instagram, tiktok og fleiri aðganga hjá ykkur í nokkrar vikur ef þetta vitfirrta samfélag fær að fara á stjá, guð blessi okkur hin ef þeir taka tvennuna.

Bournemouth 0 - 1 Man City (18:30 á þriðjudag)
Þetta verður alvöru leikur, City smá lúnir eftir bikarleikinn á lau en ná að harka þetta inn og halda þessu lifandi fyrir lokaumferðina. O the reilly skorar eða leggur upp.

Chelsea 2 - 1 Tottenham (19:15 á þriðjudag)
Einn erfiðasti leikur að spá í lengi. Chelsea lítið getað en gíra sig upp í þennan og Tottenham munu vita hvernig fór hja West ham og því aðeins tricky að átta sig á hvernig þessi spilast. Endar 2:1 Chelsea, og það verður spenna á botni og toppi í lokaumferðinni.

Fyrri spámenn:
Páll Sævar (7 réttir)
Elliði Snær Viðarsson (6 réttir)
Hinrik Harðarson (6 réttir)
Arnar Laufdal (6 réttir)
Óskar Borgþórs (6 réttir)
Sævar Atli (6 réttir)
Ísak Bergmann (6 réttir)
Hallgrímur Mar (5 réttir)
Ívar Örn (5 réttir)
Brynjar Atli (5 réttir)
Sandra Erlingsdóttir (5 réttir)
Björn Bragi (5 réttir)
Hjammi (5 réttir)
Martin Hermanns (5 réttir)
Pétur Rúnar (4 réttir)
Gabríel Snær (4 réttir)
Kristján Óli (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Ásgeir Frank (4 réttir)
Viktor Bjarki (4 réttir)
Viktor Gísli (4. réttir)
Nablinn (4 réttir)
Helgi Guðjónsson (4 réttir)
Thelma Karen (4 réttir)
Tumi Þorvars (4 réttir)
Gummi Ben (4 réttir)
Óskar Borgþórs (3 réttir)
Jakob Gunnar (3 réttir)
Gunni Birgis (3 réttir)
Bolli Már (3 réttir)
Elín Helena (3 réttir)
Siggi Höskulds (3 réttir)
Stefán Árni (2 réttir)
Sérfræðingurinn (2 réttir)
Valgeir Valgeirs (2 réttir)
Óðinn Svan (1 réttur)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í ensku úrvalsdeildinni.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner