Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
   sun 17. maí 2026 16:31
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeildin: Ibrahima Balde með sigurmarkið í Þorlákshöfn
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ægir 1 - 2 Vestri
1-0 Harley Willard ('46)
1-1 Elmar Atli Garðarsson ('72)
1-2 Ibrahima Balde ('76)

Lestu um leikinn: Ægir 1 -  2 Vestri

Ægir og Vestri áttust við í Lengjudeild karla í dag og var staðan markalaus eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik þar sem gestirnir frá Ísafirði voru þó sterkara liðið.

Vestramenn fengu bestu færi hálfleiksins en tókst ekki að nýta þau og var refsað í upphafi síðari hálfleiks þegar Harley Willard skoraði eftir um 15 sekúndur. Ægismenn lyftu boltanum hátt upp völlinn eftir miðju og endaði Harley á að pota boltanum inn.

Þjálfarateymi Vestra gerði fjórfalda skiptingu á 59. mínútu og náðu að nýta tvö færi með stuttu millibili. Fyrst jafnaði Elmar Atli Garðarsson metin eftir góða stungusendingu frá Gunnari Jónasi Haukssyni skömmu áður en Ibrahima Balde tók forystuna eftir laglegt einstaklingsframtak.

Vestri var áfram sterkara liðið á vellinum en tókst ekki að gera út um viðureignina. Ægir sótti í uppbótartíma en fann ekki jöfnunarmark svo lokatölur urðu 1-2.

Ægir er því áfram án stiga eftir fjórar umferðir á meðan Vestri er með sjö stig.
Slapp
banner
banner