Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   fös 15. maí 2026 21:23
Ívan Guðjón Baldursson
Dembélé og Olise verðlaunaðir - Sjáðu mark tímabilsins
Bestir í frönsku deildinni tvö ár í röð.
Bestir í frönsku deildinni tvö ár í röð.
Mynd: EPA
Lokahóf Ligue 1 var haldið á dögunum þar sem hinar ýmsu stjörnur voru heiðraðar fyrir magnaða frammistöðu á tímabilinu.

Ousmane Dembélé var valinn besti leikmaður deildarinnar annað árið í röð og að sama skapi var liðsfélagi hans Désiré Doué valinn sá efnilegasti annað árið í röð.

Kylian Mbappé á metið í Frakklandi eftir að hafa verið valinn besti leikmaður deildarinnar fimm ár í röð en hann kom til greina sem besti franski leikmaðurinn á erlendri grundu í ár eftir að hafa raðað inn mörkunum með Real Madrid. Mbappé hreppti þó ekki verðlaunin heldur var það Michael Olise, kantmaður FC Bayern, sem fékk nafnbótina.

Pierre Sage er titlaður sem þjálfari tímabilsins þar sem honum tókst að stýra RC Lens í annað sæti deildarinnar eftir að hafa veitt PSG alvöru samkeppni stærsta hluta tímabils.

Ýmis verðlaun voru veitt á verðlaunahátið franska fótboltasambandsins og Ligue 1, meðal annars fyrir mark tímabilsins sem er hægt að sjá hér fyrir neðan. Magnaðir taktar hjá Ousmane Dembélé.


[Ligue 1] Goal of the 25/26 Season is Ousmane Dembele against Lille.
by
u/nerdmannerd in
soccer


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner