Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
banner
   fös 15. maí 2026 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Forgangsmál að semja við Pereira
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Nottingham Forest er í viðræðum við Vítor Pereira um að gera nýjan samning við félagið eftir að honum tókst að snúa slæmu gengi liðsins við á skömmum tíma.

Pereira var ráðinn til Forest um miðjan febrúar og tókst að stýra liðinu til sigurs í 8 leikjum af 18 í öllum keppnum. Hann bjargaði Forest frá falli og kom liðinu í undanúrslit Evrópudeildarinnar.

Evangelos Marinakis eigandi Forest vill gera nýjan samning við Pereira þar sem núverandi samningur hans rennur út eftir eitt ár. Marinakis og Pereira þekkjast frá því þegar Portúgalinn þjálfaði Olympiakos í Grikklandi, sem er einnig í eigu Marinakis.

Pereira hefur tekist að hrífa leikmenn og stjórnendur Forest frá komu sinni til félagsins og er það forgangsmál fyrir félagið að semja við þjálfarann.

Pereira er fjórði þjálfarinn sem tók við hjá Forest á tímabilinu eftir að Nuno Espírito Santo, Ange Postecoglou og Sean Dyche höfðu verið reknir.

   07.05.2026 23:21
Kennir meiðslum um tapið - „Enginn möguleiki til að gera það“

Slapp
banner
banner