Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
   fös 15. maí 2026 21:41
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Hildur María: Þetta er bara upphafið á góðu rönni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram er komið áfram í 8-liða úrslitin í Mjólkurbikar kvenna eftir frábæran 3-0 sigur á heimavelli gegn ÍA. Fyrirliði Frams, Hildur María Jónasdóttir ræddi við Fótbolti.net eftir leik.


Lestu um leikinn: Fram 3 -  0 ÍA

„Þetta er búið að vera erfiðir leikir en geggjað að ná sigri og þetta er bara upphafið á góðu rönni núna" sagði Hildur.

Var frammistaðan í dag öðruvísi miðað við síðustu leiki?

„Já mér fannst við koma inn með orku og mér fannst við gera það sem við ætluðum að gera og það er auðvitað alltaf hægt að bæta eitthvað, en gott að ná í þrjú mörk. Við erum búnar að eiga erfitt með að skora og gott að halda hreinu og skora þrjú mörk. Þetta gefur okkur sjálfstraust inn í deildina."

Er hægt að nýta sigurinn til þess að mótívera hópinn?

„Já, algjörlega. Það er það sem við töluðum um fyrir þennan leik, nú ætlum við heldur betur að starta, upphafið á eitthverju. Mjög gott að ná í sigur og nú fara vonandi stigin að tikka í deildinni."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Slapp
banner
banner
banner