Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
   sun 17. maí 2026 18:02
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Skoraði þriðja leikinn í röð í sigri Skagamanna
Markús Páll skoraði þriðja leikinn í röð og er nú kominn með sex mörk í deildinni
Markús Páll skoraði þriðja leikinn í röð og er nú kominn með sex mörk í deildinni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór 1 - 2 ÍA
0-1 Viktor Jónsson ('37 )
0-2 Markús Páll Ellertsson ('49 )
1-2 Yann Emmanuel Affi ('55 )
1-2 Viktor Jónsson ('58 , misnotað víti)
Lestu um leikinn

ÍA vann annan leik sinn í Bestu deildinni í ár er liðið marði 2-1 sigur á Þór á VÍS-vellinum í dag.

Skagamenn höfðu aðeins unnið einn af fyrstu sex leikjunum á meðan Þórsarar voru með tvo sigra.

Gestirnir voru hættulegri í fyrri hálfleiknum. Þeir vildu vítaspyrnu snemma leiks eftir skalla Gísla Eyjólfssonar sem fór í varnarmann, en ekkert dæmt. Jón Gísli Eyland Gíslason átti nokkrum mínútum síðar skot sem hafnaði í slá.

Viktor Jónsson kom Skagamönnum yfir á 37. mínútu leiksins. Guðmundur Þórarinsson spyrnti aukaspyrnu inn á teiginn á Viktor sem stangaði boltanum í netið.

Skagamenn fóru með eins marks forystu inn í hálfleikinn, en fjörið varð meira snemma í þeim síðari. Markús Páll Ellertsson skoraði þriðja leikinn í röð er hann mætti sendingu Jóns Gísla og setti boltann undir Aron Birki Stefánsson í markinu. Sjötta markið sem Markús skorar í deildinni á þessari leiktíð.

Sex mínútum síðar minnkuðu Þórsarar muninn er Yann Emmanuel Affi stangaði hornspyrnu Atla Sigurjónssonar í netið.

ÍA fékk dauðafæri til að komast aftur í tveggja marka forystu á 58. mínútu er Affi tók Markús Pál niður í teignum. Viktor fór á punktinn en Aron Birkir sá við honum með stórkostlegri vörslu.

Þórsarar fóru í leit að jöfnunarmarki. Ágúst Eðvald Hlynsson átti laust skot sem Árni Marinó Einarsson varði og þá stangaði Bjarni Guðjón Brynjólfsson boltanum eftir hornspyrnu undir lokin en Baldvin Þór Berndsen kom til bjargar á ögurstundu.

Ingimar Arnar Kristjánsson fékk færi til að jafna metin á lokasekúndum leiksins en skalli hans framhjá. Ekki þeirra dagur í dag.

Skagamenn héldu út og náðu í annan sigur sinn í deildinni, en liðið er í 6. sæti með 8 stig á meðan Þórsarar eru í 10. sæti með 6 stig.
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 7 6 1 0 21 - 4 +17 19
2.    KR 6 6 0 0 25 - 11 +14 18
3.    Fram 6 4 1 1 18 - 11 +7 13
4.    Breiðablik 6 3 3 0 11 - 5 +6 12
5.    Valur 6 3 0 3 13 - 12 +1 9
6.    KA 6 2 1 3 7 - 8 -1 7
7.    Keflavík 6 2 1 3 9 - 11 -2 7
8.    Stjarnan 6 2 0 4 13 - 16 -3 6
9.    Þór 6 2 0 4 5 - 17 -12 6
10.    ÍA 6 1 2 3 7 - 13 -6 5
11.    FH 6 0 2 4 11 - 18 -7 2
12.    ÍBV 7 0 1 6 6 - 20 -14 1
Slapp
banner