PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
banner
   lau 16. maí 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Gríðarleg spenna fyrir lokaumferðina
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Lokaumferð þýska deildartímabilsins fer fram í dag og er enn verið að berjast um hin ýmsu sæti.

Það er afar spennandi barátta í kringum evrópusætin og fallsvæðið þar sem ýmislegt getur gerst.

Stuttgart og Hoffenheim eru í harðri baráttu um síðasta meistaradeildarsætið. Þau eru jöfn á stigum fyrir lokaumferðina en Stuttgart er með betri markatölu og getur því tryggt sér fjórða sætið með sigri.

Það verður þó erfitt verk því Stuttgart heimsækir sterkt lið Eintracht Frankfurt sem er í harðri baráttu um sæti í Sambandsdeildinni. Frankfurt er einu stigi á eftir Freiburg í baráttunni um sambandsdeildarsæti. Freiburg á erfiðan heimaleik við RB Leipzig, sem siglir lygnan sjó, í lokaumferðinni.

Bayer Leverkusen þarf kraftaverk til að komast í Meistaradeildina en liðið er öruggt með sæti í Evrópudeildinni. Að sama skapi þarf Augsburg kraftaverk til að stela sambandsdeildarsætinu.

Að lokum er gríðarleg spenna í fallbaráttunni þar sem þrjú neðstu lið deildarinnar eru jöfn á stigum. Markatalan gæti því endað á að skera úr um hvaða tvö lið falla beint niður og hvaða liði tekst að tryggja sér umspilsleik við þriðja sætið úr næstefstu deild.

Eins og staðan er núna er Wolfsburg með bestu markatöluna, en liðið heimsækir St. Pauli í ótrúlega eftirvæntum slag sem gæti reynst úrslitaleikur fallbaráttunnar. Á sama tíma spilar Heidenheim heimaleik við Mainz, sem siglir lygnan sjó.

Lokaumferðin
13:30 Heidenheim - Mainz
13:30 Union Berlin - Augsburg
13:30 Gladbach - Hoffenheim
13:30 Freiburg - RB Leipzig
13:30 Werder - Dortmund
13:30 Bayern - Köln
13:30 Frankfurt - Stuttgart
13:30 Leverkusen - Hamburger
13:30 St. Pauli - Wolfsburg
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 34 28 5 1 122 36 +86 89
2 Dortmund 34 22 7 5 70 34 +36 73
3 RB Leipzig 34 20 5 9 66 47 +19 65
4 Stuttgart 34 18 8 8 71 49 +22 62
5 Hoffenheim 34 18 7 9 65 52 +13 61
6 Leverkusen 34 17 8 9 68 47 +21 59
7 Freiburg 34 13 8 13 51 57 -6 47
8 Frankfurt 34 11 11 12 61 65 -4 44
9 Augsburg 34 12 7 15 45 61 -16 43
10 Mainz 34 10 10 14 44 53 -9 40
11 Union Berlin 34 10 9 15 44 58 -14 39
12 Gladbach 34 9 11 14 42 53 -11 38
13 Hamburger 34 9 11 14 40 54 -14 38
14 Köln 34 7 11 16 49 63 -14 32
15 Werder 34 8 8 18 37 60 -23 32
16 Wolfsburg 34 7 8 19 45 69 -24 29
17 Heidenheim 34 6 8 20 41 72 -31 26
18 St. Pauli 34 6 8 20 29 60 -31 26
Slapp
banner
banner
banner