Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
   fös 15. maí 2026 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Í annað sinn á tíu árum er KA talið líklegra en FH
Úr leik liðanna á síðasta tímabili.
Úr leik liðanna á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Breiðablik talið líklegra liðið gegn Val.
Breiðablik talið líklegra liðið gegn Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heil umferð í Bestu deildinni fer fram á sunnudag, tveir innbyrðisslagir verða í efri helmingnum og tveir í neðri helmingnum. Umferðin hefst 13:00 í Vestmannaeyjum og lýkur með tveimur 18:15.

Epicbet hefur opinberað stuðla fyrir leikina og vekur athygli að KA er talið líklegra til sigurs á Kaplakrikavelli gegn FH. Fljótt á litið hefur það einungis gerst einu sinni frá því að KA komst upp í efstu deild 2016 að KA, sem útilið, sé líklegra liðið til að sigra leik þessara liða.

Undantekningin var undanúrslitaleikur liðanna í Mjólkurbikarnum 2022 en þá vann FH 2-1 sigur á Kaplakrikavelli. Á því tímabili var FH í miklu basli í deildinni og rétt hélt sér uppi, en liðið fór þó alla leið í bikarúrslit og í framlengdan leik gegn Víkingi í úrslitum. Frá bikarleiknum hafa liðin mæst þrisvar á Kaplakrikavelli, KA vann tvívegis 0-3 en FH vann 5-0 risasigur á síðasta tímabili.

Stuðullinn á því að KA vinni er 2,36, stuðullinn á jafntefli er 3,80 og stuðullinn á sigri FH er 2,83.. Fyrir fram er þetta jafnasti leikur umferðarinnar, en bæði lið koma inn í leikinn eftir vonbrigði í Mjólkurbikarnum í miðri viku.

Breiðablik er talið líklegra en Valur og KR er talið talsvert líklegra en Fram. Alla stuðlana má sjá hér neðst.

Hitað verður upp fyrir umferðina í Útvarpsþætitnum Fótbolti.net á X-977 milli 12-14 á morgun, laugardag.

7. umferðin í Bestu
sunnudagur 17. maí
13:00 ÍBV-Víkingur R. (Hásteinsvöllur)
16:00 Þór-ÍA (VÍS völlurinn)
17:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
17:30 Keflavík-Stjarnan (HS Orku völlurinn)
18:15 Valur-Breiðablik (N1-völlurinn Hlíðarenda)
18:15 KR-Fram (Meistaravellir)
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 9 1 0 34 - 6 +28 28
2.    KR 10 8 1 1 38 - 23 +15 25
3.    Fram 9 6 2 1 25 - 16 +9 20
4.    Breiðablik 9 4 3 2 22 - 15 +7 15
5.    Valur 10 5 0 5 19 - 22 -3 15
6.    ÍA 9 3 3 3 12 - 16 -4 12
7.    Keflavík 9 3 2 4 12 - 18 -6 11
8.    KA 9 3 1 5 12 - 15 -3 10
9.    Stjarnan 10 3 1 6 18 - 22 -4 10
10.    Þór 9 2 0 7 7 - 23 -16 6
11.    ÍBV 9 1 2 6 14 - 23 -9 5
12.    FH 9 0 2 7 12 - 26 -14 2
Slapp
banner
banner