Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
banner
   sun 17. maí 2026 17:52
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeildin: Grindavík fagnaði fyrsta sigrinum
Lengjudeildin
Rafael Victor gerði þriðja mark Grindvíkinga í fyrsta deildarsigri tímabilsins
Rafael Victor gerði þriðja mark Grindvíkinga í fyrsta deildarsigri tímabilsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík 3 - 1 Völsungur
1-0 Haraldur Björgvin Eysteinsson ('3 )
1-1 Dagbjartur Búi Davíðsson ('17 )
2-1 Heiðar Snær Ragnarsson ('52 )
3-1 Rafael Alexandre Romao Victor ('66 )
Lestu um leikinn

Grindavík náði í sinn fyrsta sigur í Lengjudeildinni í ár er liðið vann Völsung, 3-1, á Stakkavíkurvelli í dag.

Grindvíkingar komust yfir snemma leiks. Þeir fengu hornspyrnu á 3. mínútu. Stefán Jón Friðriksson kom boltanum inn á teiginn á Harald Björgvin Eysteinsson sem var dauðafrír og skallaði boltanum í netið.

Dagbjartur Búi Davíðsson jafnaði metin á 17. mínútu með óverjandi skoti framhjá Hjörvari Daða Arnarssyni.

Staðan 1-1 í hálfleik. Grindvíkingar byrjuðu betur en Húsvíkingar unnu sig inn í leikinn þegar leið á hálfleikinn.

Heiðar Snær Ragnarsson kom Grindavík aftur yfir á 52. mínútu. Haraldur Björgvin þræddi Heiðar í gegn sem skoraði með laglegu skoti.

Gestirnir ógnuðu á næstu mínútum og voru líklegir til að jafna, en fengu blauta tusku í andlitið þegar Rafael Victor nýtti sér klaufaleg mistök í vörn Völsungs. Ingi Þór Sigurðsson setti boltann inn á teiginn og leyfði Mikael Máni Þorfinnsson boltanum að fara áfram. Varnarmenn Völsungs reyndu ekki við boltann sem fór á Rafael Victor sem gerði út um leikinn.

Fyrsti sigur Grindvíkinga staðreynd sem eru með sex stig og taplaust í deildinni á meðan Völsungur er með aðeins tvö stig.
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þróttur R. 8 5 1 2 19 - 10 +9 16
2.    Afturelding 8 5 1 2 23 - 15 +8 16
3.    HK 8 5 0 3 16 - 14 +2 15
4.    Fylkir 8 5 0 3 13 - 11 +2 15
5.    Vestri 8 4 1 3 16 - 16 0 13
6.    Leiknir R. 8 3 3 2 11 - 10 +1 12
7.    Grótta 7 4 0 3 14 - 15 -1 12
8.    Njarðvík 8 3 2 3 11 - 7 +4 11
9.    Grindavík 7 1 4 2 7 - 9 -2 7
10.    Ægir 8 2 1 5 9 - 14 -5 7
11.    ÍR 8 2 1 5 16 - 22 -6 7
12.    Völsungur 8 0 2 6 5 - 17 -12 2
Slapp
banner
banner
banner