Milan, Tottenham og Villa hafa áhuga á Summerville - Atletico Madrid horfir til Reijnders - Everton hefur áhuga á Jesus
Erfitt að finna betri stað til að búa á en skoðar sína möguleika
Glódís afhjúpar hver stal senunni í nýliðavígslunni
Steini: Hennar að sýna að hún sé klár í að leysa þetta
„Ótrúlegt en satt að þetta nákvæmlega hafi komið upp"
Óvissa eftir geggjaðan tíma - „Tíu skref á milli okkar“
Draumurinn frá fimm ára aldri
„Alltaf mikill heiður að sjá nafnið mitt á þessu skjali"
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
   fös 15. maí 2026 23:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keflavík
„Sá tækifæri á Íslandi og hugsaði núna eða aldrei"
Kvenaboltinn
Vedran á hliðarlínunni í kvöld.
Vedran á hliðarlínunni í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
„Ég er stoltur af liðinu mínu og hvernig við spiluðum," sagði Vedran Medenjak, þjálfari Keflavíkur, eftir 0-2 tap gegn Víkingi í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í kvöld.

Víkingur var talsvert sigurstranglegra liðið fyrir leik kvöldsins en Keflavík varðist vel og fór leikurinn í framlengingu þar sem gestirnir úr Fossvogi reyndust sterkari.

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  2 Víkingur R.

„Ég vil trúa að þetta hafi verið jafn leikur þar sem bæði lið fengu sín færi. Því miður vantaði orku og einbeitingu í lokin fannst mér. Gæðin eru þannig hjá andstæðingnum að þær refsa fyrir slíkt," sagði Vedran.

Keflavíkurliðið er mjög ungt og voru til dæmis 14 og 15 ára stelpur að byrja hjá liðinu í kvöld.

„Ég tel að þessi leikur sýni að við erum á réttri leið. Við erum með marga unga leikmenn sem við getum byggt á og þær eru framtíðin hjá félaginu okkar. Það er margt jákvætt," sagði Vedran. „Við höfum ákveðið að gefa ungu leikmönnunum alvöru tækifæri til að spila og þróast. Við trúum því að eftir nokkur ár verði þær leiðtogar liðsins."

Sá tækifæri á Íslandi
Vedran er á sínu fyrsta tímabili sem þjálfari kvennaliðs Keflavíkur. Eftir farsælan feril í Króatíu sem yfirmaður akademíu Slaven Belupo, aðalþjálfari Koprivnica og héraðsþjálfari hjá fótboltasambandinu þar í landi, flutti hann til Íslands og hóf að þjálfa yngri flokka hjá Val áður en hann tók við 2. flokki Keflavíkur árið 2023 þar sem hann náði eftirtektarverðum árangri.

Í viðtalinu í kvöld var Vedran spurður út í sína sögu og flutningana til Íslands.

„Þetta er þriðja árið mitt í Keflavík og fjórða árið á Íslandi. Ég var þjálfari 2. flokks drengja. Það var opnun í kvennaliðinu og ég sá það sem stóra áskorun. Ég vil að við þróum leikmennina og liðið, og lyftum þessum hluta félagsins hærra. Þær eru ungar og þurfa meiri reynslu, fleiri leiki. Það er mikið jákvætt sem við getum byggt á," sagði Vedran og hélt áfram:

„Ég sá tækifæri á Íslandi og hugsaði núna eða aldrei. Ég er ekki svo ungur ennþá. Ég hugsaði um að gera breytingu á lífinu og ákvað að gera það. Ég hef aldrei séð eftir því. Ég kann vel við Ísland, fólkið og orkuna hérna. Vindurinn mætti vera minni en maður venst því. Ég er að njóta þessa kafla í lífi mínu."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
banner