Keflavík 0 - 2 Víkingur R.
0-1 Jasmín Erla Ingadóttir ('100)
0-2 Helena Ósk Hálfdánardóttir ('118)
0-1 Jasmín Erla Ingadóttir ('100)
0-2 Helena Ósk Hálfdánardóttir ('118)
Lestu um leikinn: Keflavík 0 - 2 Víkingur R.
Keflavík tók á móti Víkingi R. í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins og úr varð afar jafn slagur þar sem staðan var markalaus eftir bragðdaufan fyrri hálfleik.
Víkingur hélt boltanum betur innan liðsins en Keflavík fékk bestu færin í síðari hálfleik án þess þó að takast að skora. Ariela Lewis var afar lífleg og fékk nokkur dauðafæri en klúðraði þeim.
Víkingar komust í góðar stöður en náðu ekki að skapa vandræði fyrir Önnu Arnarsdóttur á milli stanganna.
Ariela fékk annað dauðafæri í byrjun uppbótartímans en nýtti það ekki svo gestirnir úr Víkinni svöruðu með dauðafæri á hinum endanum áður en þær skoruðu eftir hornspyrnu. Þar virðist Jasmín Erla Ingadóttir hafa komið boltanum inn eftir mikinn barning í vítateignum.
Brynja Arnarsdóttir átti skot í slá fyrir Keflavík á lokamínútum framlengingarinnar og svöruðu Víkingar með því að innsigla sigurinn á 118. mínútu. Jasmín Erla stal boltanum ofarlega á vellinum og gaf einfalda sendingu á Helenu Ósk Hálfdánardóttur sem kláraði með marki.
Niðurstaðan grátlegt tap fyrir Keflavík þar sem færanýtingin kostaði liðið.


